Staða og horfur sumarexemrannsókna

  • 25. september 2014
  • Fréttir
Fræðsluerindi fer fram á Keldum í dag.

Sigurbjörg Þorsteinsdóttir ónæmisfræðingur á Keldum mun halda erindi um sumarexemsrannsóknir, stöðu og horfur á Keldum í dag, fimmtudaginn 25. september nk. kl. 12:20 á bókasafni Tilraunastöðvarinnar.  

„Sumarexem er húðofnæmi í hestum orsakað af biti smámýs sem lifir ekki á Íslandi. Tíðni sjúkdómsins er mjög há í útfluttum hestum. Unnið er að því að þróa ónæmismeðferð gegn exeminu. þ.e. forvörn og lækningu og notaðar til þess þrjár nálganir: 1) Próteinbóluefni með ónæmisglæði; sprautun í eitla eða í húð með hreinsuðum ofnæmisvökum í völdum glæðum virðist ræsa varnarsvar gegn ofnæmi. 2) Veiruferjubóluefni; hönnuð hefur verið Baculoveiruferja með ofnæmisvakageni, prófanir í hestum standa yfir ásamt hönnun á fleiri veiruferjum. 3) Bygg sem tjáir ofnæmisvaka; tekist hefur að mynda sérvirkt mótefnasvar í blóði og munnvatni hesta með meðhöndlun um munn með byggi sem tjáir utanaðkomandi prótein. Reynt verður að afnæma hesta á sama hátt,“ segir í tilkynningu frá Tilraunastöðinni á Keldum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link