Staðbundin veikindi

  • 1. desember 2022
  • Fréttir

Mynd tengist fréttinni ekki beint.

Mikill óhugur hefur farið um hestamenn síðan upp komst um hópsýkingu í hrossum um helgina.

„Þetta eru mjög staðbund­in veik­indi og ekki hafa komið upp nein ný til­felli,“ seg­ir Sig­ríður Björns­dótt­ir, sér­greina­dýra­lækn­ir hrossa hjá Mat­væla­stofn­un í samtali við Eiðfaxa um óþekktan sjúkdóm sem upp kom í hópi hrossa um helgina. Hrossin sem veiktust voru í hrossastóði á Suðurlandi og á húsi á höfuðborgarsvæðinu, mikilvægt er þó að vita að báðir þessir hópar er tengdir og þeir koma frá sama aðila.

„Við vit­um ekki ná­kvæm­lega hvað þetta er enn þá en það er verið að vinna í því á fullu að finna út hvað þetta er. Við höfum ekki lokað neinum dyrum ennþá en okkur sýnist ekki að það sé nýr smitsjúkdómur í landinu,“ bætir hún við.

Viðbragðsáætlun við smitsjúkdómum hefur ekki verið virkjuð en mikilvægt er þó að hestamenn séu vakandi fyrir einkennum í hrossum hjá sér. Einkenni eru hár hiti og sum hrossin hafa fengið mikinn bjúg á framfætur, brjóst og jafnvel haus.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link