Starfskraftur óskast
Sögusetur íslenska hestsins á Hólum í Hjaltadal óskar eftir því að ráða öflugan starfskraft á meðan að sumaropnun setursins stendur yfir frá 1. júní til 31. ágúst 2016. Í starfinu felst varsla Setursins, leiðsögn um það og tilfallandi störf í samráði við forstöðumann, s.s. vinna að heimasíðu, ljósmyndasafni o.fl. Um er að ræða spennandi starf fyrir áhugafólk um hesta, menningartengda ferðaþjónustu, þjóðmenningu o.fl. og er upplagt fyrir háskólastúdenta á einhverju þessara sviða.
Krafist er hugkvæmni, snyrtimennsku og framtakssemi. Viðkomandi þarf að geta bjargað sér á ensku gagnvart gestum og leiðsögn, hæfni að auki í norðurlandamáli og þýsku er kostur en ekki skilyrði.
Um er að ræða fullt starf en Setrið verður opið alla daga vikunnar þessa þrjá mánuði, frá kl. 10 til 18, afleysing fer fram í samráði við Ferðaþjónustuna á Hólum og forstöðumann. Möguleiki er á sveigjanlegum vinnutíma gagnvart vikudögum.
Allar nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 891 9879 og e-mail [email protected] Umsóknarfrestur er til 15. maí nk.
f.h. Söguseturs íslenska hestsins
Kristinn Hugason forstöðumaður.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
LH auglýsir eftir mótshöldurum