Stefnir í stórveislu!

  • 30. mars 2013
  • Fréttir
Stefnir í stórveislu!

Nú er allt orðið klárt fyrir veislu aldarinnar í Ölfushöllinni annað kvöld, en þá fer fram hin árlegaStóðhestaveisla, einn stærsti viðburður ársins hjá hrossaræktarfólki. Hestakosturinn að þessu sinni er magnaður, en áætlað er að um 50 hestar komi fram, ýmist einir eða fleiri saman í hóp. Í boði verður blanda af ungum og efnilegum folum á móti þrautreyndum og hátt dæmdum köppum úr röðum stóðhesta. Fram koma m.a. Óskasteinn frá Íbishóli, landsmótssigurvegararnir úr A-flokki Fróði frá Staðartungu og Ómur frá Kvistum. Heimsmethafinn Nói frá Stóra-Hofi, Sjóður frá Kirkjubæ, Konsert frá Korpu og Hrannar frá Flugumýri, hæst dæmdi hestur ársins í fyrra, með hvorki meira né minna en 9.16 fyrir hæfileika!

B-flokks sigurvegarinn frá LM, Glóðafeykir frá Halakoti, kemur á svæðið ásamt Framherja frá Flagbjarnarholti sem margir eru spenntir að sjá. 
Gaumur frá Auðsholtshjáleigu og Loki frá Selfossi koma fram með afkvæmum og Galsi frá Sauðárkróki verður heiðraður. 
Miðasala hefur rokgengið og ljóst að uppselt verður í fyrramálið, því er um að gera að tryggja sér miða sem allra fyrst vilji menn ekki missa af veisluhöldunum. Miðar fást á N1 í Borgarnesi, Mosfellsbæ, Ártúnshöfða í Rvk, Hveragerði, Selfossi og Hvolsvelli, sem og hjá Baldvini og Þorvaldi, Líflandi og Hestum og Mönnum. 
Sýningin hefst kl. 20 og gerð verða tvö hlé. Allir sýningargestir fá bókina Stóðhestar 2013 afhenta við innganginn, en hún er 324 bls. að stærð og inniheldur upplýsingar um rúmlega 270 stóðhesta. Þar sem gert er ráð fyrir smekkfullu húsi eru gestir hvattir til að mæta tímanlega til að koma sér fyrirhleypt verður inn í salinn kl. 19 
Það stefnir í stórskemmtilegt kvöld þar sem hægt verður að skoða úrval hesta sem í boði eru fyrir ræktendur á komandi sumri. Góðir hestar, skemmtilegt fólk og dúndrandi stemming – blanda sem getur ekki klikkað!
 
Listi yfir alla hesta sem áætlað er að taki þátt (birt með fyrirvara um forföll):
 
Galsi frá Sauðárkróki
Andri Vatnsleysu
Arion Eystra-Fróðholti
Árli Laugasteini
Askur frá Syðri-Reykjum
Álmur frá Skjálg
Bikar Syðri-Reykjum
Brjánn Blesastöðum
Blær Miðsitju
Bragur Túnsbergi
Dagfari Miðkoti
Dynur Dísarstöðum
Dáti Hrappsstöðum
Framherji Flagbjarnarholti
Fróði frá Staðartungu
Gaumur Auðsholtshjáleigu / afkvæmi
Glóðafeykir Halakoti
Grunnur Grund
Heimur frá Votmúla
Hrannar Flugumýri
Hrannar Skeiðvöllum
Hrói Flekkudal
Hrókur Efsta-Dal
Hvinur Blönduósi
Jarl Árbæjarhjáleigu
Keimur Kjartansstöðum
Kolbeinn Hrafnsholti
Konsert frá Korpu
Kórall Eystra-Fróðholti
Kórall Lækjarbotnum
Krapi Selfossi
Krókur Ytra-Dalsgerði
Leonard Vakurstöðum
Loki m/ afkvæmum
Lómur Stuðlum
Magni Hólum
Magni Þjóðólfshaga
Möller Blesastöðum
Nói frá Stóra-Hofi
Ómur frá Kvistum
Óskasteinn Íbishóli
Penni Eystra-Fróðholti
Prestur Hæli
Rauðkollur  Eyvindarmúla
Sjóður Kirkjubæ
Snævar Þór Eystra-Fróðholti
Sólon Vesturkoti
Tónn Austurkoti
Tenór Túnsbergi
Toppur Auðsholtshjáleigu
Váli Efra-Langholti
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link