Stefnir þú á Heimsmeistaramót?
Opið Íþróttamót Spretts (WR) og úrtöku fyrir HM verður haldin 10.-14. júni n.k. á félagssvæði Spretts. Skráning hefst í dag.
„Dagskráin verður þannig að fyrri úrtakan verður miðvikudaginn 10 júni og sú seinni verður á sjálfu Íþróttamótinu sem hefst formlega föstudaginn 12 júni. Skráning er á sportfengur.com og stendur til miðnættis 7 júni. Vinsamlegast athugið að þeir sem eru að skrá sig í úrtökuna þurfa að velja viðburðinn „Úrtaka fyrir HM“ Þeir sem skrá sig á Íþróttamótið skrá sig undir viðburðinn „Opið Íþróttamót Spretts“
Keppt verður í eftirtöldum flokkum og greinum:
- Meistaraflokkur: Fjórgangur V1 – Tölt T1 – Tölt T2 – Fimmgangur F1 – Gæðingaskeið
- 1.Flokkur : Fjórgangur V2 – Tölt T3 – Tölt T2 – Fimmgangur F2 – Gæðingaskeið
- 2.Flokkur : Fjórgangur V2 – Tölt T3 – Tölt T2 – Tölt T7 – Fimmgangur F2 – Gæðingaskeið
- Ungmennaflokkur : Fjórgangur V2 – Tölt T3 – Tölt T2 – Tölt T7 – Fimmgangur F2 – Gæðingaskeið
- Unglingaflokkur : Fjórgangur V2 – Tölt T3 – Tölt T2 – Tölt T7 – Fimmgangur F2 – Gæðingaskeið
- Barnaflokkur : Fjógangur V2 – Tölt T3 – Tölt T7
- Kappskeiðreiðar : 100m skeið – 150m skeið – 250 m skeið
Mótanefnd áskilur sér rétt til að sameina og/eða fella niður greinar og flokka ef það næst ekki nægileg þátttaka.
Skráningagjöld eru :
- Úrtaka fyrir HM kr. 6.000 pr úrtöku (kr. 12.000 fyrir tvöfalda úrtöku)
- Meistaraflokkur og gæðingaskeið kr. 5500
- 1 og 2 flokkur og Ungmennaflokkur kr. 5000
- Unglinga- og barnaflokkur kr. 3000
- Skeiðgreinar kr. 3000
Ef þið lendið í einhverjum vandræðum við skráningu þá vinsamlegast sendið tölvupóst á Karen netfangið [email protected] eða á Huldu á netfangið [email protected].“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH