Sterkur fimmgangur í Finnlandi –
Fimmgangurinn í Finnlandi var geysilega sterkur. Til að komast í A úrslit þurfti 6,97 og 6,47 þurfti í einkunn til þess að tryggja sér sæti í B úrslitum.
Helmingur af úrslitasætunum kom í hlut Svía enda eru þeir gríðarlega sterkir í skeiði og fimmgangi um þessar mundir. Camilla Mood Havig frá Noregi er þó efst eftir forkeppni með Herjan frá Lian, keppnishest sem hún hefur verið að byggja upp undanfarin ár. Herjan er í stöðugri framför og er töltið sérstaklega að verða betra og betra ásamt góðu skeiði sem Camilla sýndi átakalaust og fallega.
Fredrik Rydström frá Danmörku er annar eftir forkeppni með Krók frá Efri Rauðalæk með örugga sýningu og góðar skeiðsýningar. Einn íslenskur keppandi er í A úrslitum, Sigurður Matthíasson og Vár frá Vestra Fíflholti.
Margir sterkir hestar og knapar eru í B úrslitunum svo allt getur gerst í fimmganginum og sigurvegari þar getur hæglega blandað sér í toppbaráttuna í A úrslitum. Heimsmeistarinn í fimmgangi, Stian Pedersen er í sjötta sæti með ungan og óreyndan keppnishest, Létti frá Hellesylt og fast á hæla hans liggur Christina Johansen frá Danmörku.
Það bendir því allt til þess að það verði spennandi úrslit í fimmgangi bæði á laugardag og sunnudag.
A-Final
01 066 Camilla Mood Havig [S] / Norway
Herjann fra Lian [NO1999104267] 7,30
PREL 7,3 (1) 7,1 (3) 7,7 (1) 7,2 (2) 7,4 (1)
02 094 Fredrik Rydström [S] / Denmark
Krókur frá Efri-Rauðalæk [IS2000165490] 7,23
PREL 7,0 (5) 7,3 (1) 7,4 (2) 7,1 (3) 7,3 (2)
03 031 Josefin Birkebro [S] / Sweden
Kjarni vom Wallberg [DE1999108313] 7,03
PREL 7,3 (1) 6,8 (5) 7,0 (5) 7,3 (1) 6,5 (11)
04 026 Helene Gustavsson [S] / Sweden
Borgfjörð vom Wiesengrund [DE1996163847] 7,00
PREL 7,0 (5) 6,8 (5) 7,4 (2) 6,8 (5) 7,2 (3)
05 013 Sigurður Vignir Matthíasson [S] / Iceland
Vár frá Vestra-Fíflholti [IS2000184656] 6,97
PREL 7,3 (1) 6,9 (4) 6,9 (8) 6,7 (8) 7,1 (4)
05 027 Jaqueline Wahlström [S] / Sweden
Hrekkur från Hålåsen [SE2000103623] 6,97
PREL 6,8 (7) 6,8 (5) 7,2 (4) 7,1 (3) 7,0 (5)
B-Final
07 077 Stian Pedersen [S] / Norway
Léttir fra Hellesylt [NO2004115369] 6,87
PREL 6,8 (7) 7,2 (2) 7,0 (5) 6,8 (5) 6,8 (7)
08 088 Christina Johansen [S] / Denmark
Snjall fra Vorsabæ II [IS1997187982] 6,80
PREL 6,7 (9) 6,7 (8) 6,9 (8) 6,8 (5) 6,9 (6)
09 096 Jón Stenild [S] / Denmark
Hamur frá Blesastöðum 2 [IS1998187801] 6,67
PREL 7,1 (4) 6,6 (9) 6,7 (10) 6,3 (12) 6,7 (10)
10 035 Linnea Vas [S] / Sweden
Kasper frá Tókastöðum [IS1994176330] 6,47
PREL 6,6 (10) 6,3 (10) 7,0 (5) 6,5 (11) 6,3 (15)
10 091 Elias Arnason [S] / Denmark
Karri frá Kálfsstöðum [IS2004158592] 6,47
PREL 6,0 (16) 6,2 (11) 6,6 (11) 6,6 (9) 6,8 (7)
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH