Stjörnuhappadrætti Adams
Drætti hefur verið frestað til 12. maí í Stjörnuhappadrætti Adams.
Þá hefur folatollur undir hinn geysiefnilega Sæmund frá Vesturkoti, leyst af hólmi toll undir hinn brottflutta Sædyn frá Múla.
Sæmundur er efnilegur foli á fjórða vetri, undan Sædyni og móður Spuna frá Vesturkoti, Stelpu frá Meðalfelli.
Happdrættismiðar eru til sölu í Líflandi og víðar en ágóðinn af sölunni fer í að klára keppnisvöll hestamannafélagsins í Kjósinni að er fram kemur í tilkynningu frá stjórn Adams.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH