Stóðhestablað Hestablaðsins frítt fyrir áskrifendur
Stóðhestablað Hestablaðsins er í prentun og kemur út á föstudag. Allir áskrifendur Hestablaðsins fá blaðið sent frítt í pósti. Stóðhestablaðið er 116 síður og í því eru auglýstir 117 stóðhestar. Einnig er í blaðinu viðtöl við Guðmar Aubertsson og Jakobínu á Sandhólaferju, sem opna nýja sæðingastöð 15. maí, og við kynbótaknapa ársins 2010 Bjarna Jónasson (Hesta-Bjarna yngri).
Einnig eru í blaðinu upplýsingar úr WorldFeng yfir kynbótamat reyndra stóðhesta. Þrjár töflur yfir stóðhesta með mismikla afkvæmareynslu, raðað eftir aðaleinkunn, og einnig töflur yfir einstaka eiginleika hjá stóðhestum með 10 afkvæmi og fleiri. Aðeins stóðhestar staðsettir á Íslandi eru í töflunum og eru þær hugsaðar sem praktískt tæki fyrir ræktendur.
Hægt er að gerast áskrifandi að Hestablaðinu í síma 511-6622. Upplagt tækifæri til að fá Stóðhestablað Hestablaðsins frítt inn um lúguna.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH