Stóðhestabókin komin í verslanir
Fátt er meira spennandi fyrir hrossaræktandann en að velja stóðhesta á hryssurnar sínar, nema ef vera skyldi að sjá afraksturinn. Stóðhestabókin hefur í mörg ár verið ómissandi verkfæri ræktandans til að búa til nýjar vonarstjörnur og hefur úrvalið af hátt dæmdum hestum sjaldan verið meira en í bókinni 2022. Nú getur þú nálgast Stóðhestabókina í öllum helstu hestavöruverslunum.
Ef þú ert áskrifandi þá fylgdi með Eiðfaxa vetur ávísun sem þú framvísar og færð bókina frítt gegn henni.
Stóðhestabókin fæst í eftirfarandi verslunum:
- Verslanir Líflands um allt land
- Ástund Austurveri
- Equsana verslunin á Lynghálsi
- Baldvin og Þorvaldur á Selfossi
- Verslun KB í Borgarnesi
- Verslunin Eyri í Skagafirði
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH