Stóðhestadeginum aflýst
Ákveðið hefur verið að aflýsa stóðhestadegi Eiðfaxa sem fyrirhugað var að halda á Brávöllum á laugardaginn vegna lítils áhuga ræktenda á að taka þátt í viðburðinum.
Veðurspáin er frábær fyrir laugardaginn, völlurinn á Selfossi eins og hann verður bestur og ljóst er að allt er eins og best getur verið fyrir utan lítinn áhuga stóðhesteiganda.
Eiðfaxi þakkar þeim sem sýndu framtakinu áhuga og vonar að áhuginn verði meiri á næsta ári.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH