Stóðhestaveislan styrkir fjölskyldu Guðjóns Björnssonar

  • 13. apríl 2023
  • Fréttir
Líkt og undanfarin ár styrkir Stóðhestaveislan góðgerðarmálefni.

Í ár styður Stóðhestaveislan fjölskyldu Guðjóns Björnssonar á Syðri-Hömrum í Ásahreppi. Guðjón lést af slysförum 17. mars s.l. og er söfnunin til styrktar konu hans og börnum.

Eins og áður á Stóðhestaveislunni verða seldir happdrættismiðar um kvöldið og eftir hana og einnig verður uppboð á folatolli undir einn besta hest landsins á staðnum. Allur ágóði af söfnunni rennur til fjölskyldu Guðjóns.

Einstaklingar og fyrirtæki sem vilja styðja við málefnið með happdrættisvinningum eða beinum fjárstuðningi geta haft samband við Magnús Benediktsson s: 893 3600 eða [email protected]

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link