Stóðréttir á Melgerðismelum
„Stóðréttir verða á Melgerðismelum 1.okt. Rekið verður inn kl 13:00. Funamenn sjá um veitingarnar, svo enginn þarf að fara svangur heim. Hvetjum við fólk til að koma og upplifa skemmtilega réttarstemmingu með Eyfirðingum.
Stóðréttarball verður haldið í Funaborg 1.okt. Hljómsveit Geirmundar Valtýrssonar leikur fyrir dansi fram á nótt. Húsið opnar kl 22, miðaverð kr.2500 – Sveitaböllin gerast ekki betri.“
Hestamannafélagið Funi
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing