Stór dagur framundan – staðan
Mynd/GHP
Forkeppni í tölti er hafinn í úrhellisrigningu hér í St. Radegund. Fyrsti íslenski keppandinn á völlinn er Hinrik Bragason og Sigur frá Hólabaki, munu þeir ríða inn á völlinn kl. 10.30 á staðartíma. Síðan rekur dagskráin sig fram til kl. 15 í dag. Fyrir hönd Íslands keppa ungmennin okkar, Hekla Katharína og Gautrekur, Arnar Bjarki og Röskur og Agnes Hekla og Vignir ásamt þeim Hinrik og Sigri, Viðari og Tuma og heimsmeistarinn Jóhann Skúlason á Hnokka frá Fellskoti.
Hvinur frá Holtsmúla, sem Jóhann sat þegar hann hampaði tölthorninu 2005 og 2009 keppir líka í dag í ungmennaflokki, og er það hin norska Elise Lundhaug sem situr hann. Það er því engin smá keppni sem bíður Heklu, Arnars og Agnesar!
Hægt er að fylgjast með lifandi lýsingu á mótinu hér.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH