Stór og fönguleg hross

  • 1. ágúst 2012
  • Fréttir
Íslensk hross hafa stækkað töluvert á undanförnum áratugum. Hross sem eru 140 sentimetrar á bandmál þykja lítil í dag.

Þórir frá Hólum og Víkingur frá Ási eru hæstir stóðhesta á herðakamb af þeim er sýndir voru í kynbótadómi á LM2012, eða 149 sentimetrar á stangarmáli. Samkvæmt þeirri þumalputtareglu að sjö til átta sentimetrum þurfi að bæta við til að fá út hæð á herðakamb á bandmáli, þá eru þessi hestar um 157 sentimetrar á bandmál.

Stærstu hryssurnar í kynbótasýningum á LM2012 eru Skjönn frá Skjálg og Dáð frá Jaðri, 147 sentimetrar á stöng. Sem gera um 154 til 155 á bandmáli. Deildar meiningar eru um hve sé æskileg stærð íslenska reiðhestsins. Fyrir þrjátíu árum þóttu hestar komnir í fullorðinna tölu ef þeir voru 140 sentimetrar á bandmáli.

Hestar sem voru 150 og yfir þóttu risar. Óneitanlega eru stærri hrossin ásjálegri á velli, ekki síst ef þau eru reist og fögur eins og Skjönn frá Skjálg. Knapi er Sigursteinn Sumarliðason.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link