Stórsýning Fáks í kvöld
Stórsýning Fáks fer fram í reiðhöllinni í Víðidal í kvöld 30. apríl.
Fram kemur í tilkynningu frá aðstandendum sýningarinnar að mikill floti gæðinga verði sýndir: “Klárhross, alhliðahross, hryssur, stóðhestar, afkvæmahópur, afreksknapar og margt fleira.Viðar Ingólfs og Stemma frá Holtsmúla – Hinrik Bragason og Sigur frá Hólabaki – Díva frá Álfhólum og Kjarnorka frá Kálfholti, auk skemmtilegra töltslaufa og óvæntra atriða.”
Sýningin hefst kl. 21 og er miðaverð kr. 2.000, en frítt fyrir 12 ára og yngri. Miðasala við innganginn.
Þá verður bjórkvöld eftir sýningu í félagsheimili Fáks.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH