Stórsýning Sunnlenskra hestamanna í dag

  • 14. apríl 2022
  • Fréttir
Það stefnir í mikla veislu í Rangárhöllinni í kvöld!

Mörg fremstu hrossaræktarbú Suðurlands hafa staðfest komu sína líkt og Skálakot sem mætir með höfðingjann Skýr frá Skálakoti og fleiri hross. Jóhanna Margrét Snorradóttir mætir með glæsihestinn Bárð frá Melabergi. Hemla II  keppnis- og ræktunarbú Geysis 2021 og Leó Geir Arnarsson mjölnisbikar hafi Geysis á glæsihryssunni Matthildi frá Reykjavík.

Fleiri atriði verða kynnt í viðburðinum á Facebook: https://www.facebook.com/events/3153467251602065

Þetta er sýning sem á erindi við alla hestamenn og enginn á að láta framhjá sér fara.

Sýningin fer fram í Rangárhöllinni á Hellu annað kvöld (Skírdag), húsið opnar kl. 19:00 og sýning hefst kl. 20:00.

Forsala miða fer fram á www.tix.is/storsyning en miðar eru einnig seldir á staðnum.

Þeir sem kaupa miða í forsölu þurfa ekki að bíða í röð og komast beint inn. Mikilvægt er samt að mæta tímanlega því ekki verða tekin frá sæti.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link