Styrkur til íþrótta- og tómstundastarfs
Ætla má að styrkurinn geta nýst börnum til að stunda hestamennsku
Opnað hefur verið fyrir umsóknir á sérstökum íþrótta- og tómstundastyrk fyrir börn sem búa á tekjulægri heimilum. Er þetta hluti af aðgerðum stjórnvalda vegna Covid-19 þar sem markmiðið er að jafna tækifæri barna til þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Styrkurinn er veittur vegna barna sem eru fædd á árunum 2005–2014 og búa á heimilum þar sem heildartekjur framfærenda, einstaklings, hjóna eða sambúðarfólks, voru að meðaltali lægri en 740.000 kr. á mánuði á tímabilinu mars–júlí 2020.
Styrkurinn er 45.000 kr fyrir hvert barn.
Styrkirnir koma til viðbótar hefðbundnum íþrótta- og tómstundastyrkjum sveitarfélaga. Hægt er að lesa nánar um styrkinn og jafnframt sækja um styrk með því að smella hér.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH