Suðurlandsmótið í hestaíþróttum
Suðurlandsmótið í hestaíþróttum verður haldið á Gaddstaðaflötum dagana 10.-14. ágúst nk. Mótið er World ranking mót og keppt verður í eftirfarandi flokkum:
Opinn flokkur: Tölt T1, T4, fjórgangur, fimmgangur, gæðingaskeið (1 knapi inná vellinum í einu).
Áhugamannaflokkur: Tölt T1, T7, fjórgangur, fimmgangur (2-3 knapar inná vellinum í einu).
T7~ riðið hægt tölt síðan snúðið við og riðið frjáls hraði upp á hina höndina, gefnar eru 3 einkunnir þ.e. fyrir hægt tölt, tölt með frjálsum hraða, ásetu og stjórnun.
Ungmennaflokkur: Tölt T1, T4, fjórgangur (1. knapi inná vellinum í einu),
fimmgangur ( 2-3 knapar inná vellinum í einu), gæðingaskeið.
Unglingaflokkur: Tölt T1, T4, fjórgangur, fimmgangur (2-3 knapar inná vellinum í einu), gæðingaskeið.
Barnaflokkur: Tölt T1, T7, fjórgangur (2-3 knapar inná vellinum í einu).
T7~ riðið hægt tölt síðan snúðið við og riðið frjáls hraði upp á hina höndina, gefnar eru 3. einkunnir, þ.e. fyrir hægt tölt, tölt með frjálsum hraða, ásetu og stjórnun.
Skeiðgreinar: 100m og ef næg þátttaka fæst í 150m og 250m.
Skráning fer fram mánudagskvöldið 8. ágúst frá kl 18:00 – 22:00 í símum
Óli: 8637130, Dóra: 8975759, Erlendur: 8978551, Hallgrímur: 8642118, Steinn: 8939966 og Vignir: 8943106.
Þær upplýsingar sem þurfa að vera til staðar er IS-númer hests, nafn og kt knapa.
Skráning og greiðsla fer fram í gegnum síma(visakort) eða á staðnum, verðum í Kanslaranum á Hellu.
Skráningargjaldið er 5000 kr. á grein en 40.000 kr. hámark á fjölskyldu (blóðtengsl).
Nánari dagskrá auglýst síðar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH