Sunnlenskir boða til veislu
Dögg frá Steinnesi verður einn þeirra gæðinga sem gleðja munu augað á Ræktun 2011. Knapi á myndinni er Tryggvi Björnsson.
Sunnlenskir ræktunarmenn boða til veislu á laugardaginn næsta, en þá verðu sýningin Ræktun 2011 haldin í Ölfushöllinni. Sýnd verða afkvæmi undan þekktum ræktunarhryssum og má þar nefna gæðingshryssurnar Randalín frá Torfastöðum, Perlu frá Ey, Silkifis frá Torfastöðum, Glímu frá Vindheimum og Urði frá Sunnuhvoli.
Heiðurshryssa Suðurlands verður heiðruð. Einnig verða kynnt öll þau sunnlensku bú sem tilnefnd voru til ræktunarverðlauna í fyrra og hross frá þeim munu skyrpa úr hófum á reiðhallargólfinu.
Úrval hryssna og stóðhesta frá öðrum ræktunarbúum á Suðurlandi mæta, og einnig ræktunarhópar frá Skeiðháholti, Kaldbak, Austurkoti, Strandarhjáleigu, Dalbæ og Bakkakoti svo einhver bú séu nefnd.
Glæsihryssan Dögg frá Steinnesi hefur heillað fólk upp úr skónum á sýningum í vetur. Hún verður á svæðinu. Þá munu afkvæmi Glóðars frá Reykjavík og Stála frá Kjarri gleðja gesti og margt, margt fleira.
Sýningin hefst kl. 20 á laugardagskvöld og fer miðasala fram við innganginn. Miðaverð er kr. 2.500, frítt fyrir 16 ára og yngri.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH