Svanhildur Guðbrandsdóttir valin Íþróttamaður USVS 2020

  • 16. júní 2021
  • Fréttir

Á 51. Ársþingi Ungmennasambands Vestur-Skaftafellssýslu sem haldið var 9. júní s.l var Svanhildur Guðbrandsdóttir úr hestamannafélaginu Kóp valin Íþróttamaður USVS 2020.

Svanhildur hefur staðið sig vel á þeim mótum sem hún hefur keppti á árið 2020 og í lok árs 2020 var Svanhildur valin í ungmennalandslið Íslands í hestaíþróttum. Aðalkeppnishross Svanhildar hefur verið Aðgát frá Víðivöllum fremri og Pittur frá Víðivöllum fremri.

Svanhildur er flott fyrirmynd. Hún er reglusöm, duglegur námsmaður og virkilega samviskusöm í þeim verkefnum sem hún tekur sér fyrir hendur.

Engin lýsing til

Sanne V. Hezel og Sabina Victoria voru tilnefndar til að verða íþróttamaður USVS. Lárus Guðbrandsson tók á móti verðlaunum fyrir hönd Svanhildar.

 

 

usvs.is

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link