Svellkaldar konur – skráning hafin!
Skráning á Svellkaldar 2010 hófst í morgun og nú þegar eru 45 skráningar staðfestar! Aðeins 100 pláss eru í boði og því er um að gera að drífa sig í að skrá því hér gildir reglan „fyrstur kemur, fyrstur fær.“
Skráningargjald er kr. 4.000 á hest, hver knapi má skrá tvo hesta að hámarki. Eingöngu er tekið við skráningum á vefnum www.gustarar.is undir liðnum skráning og þarf að ganga frá greiðslu skráningargjalda með greiðslukorti samhliða til að skráning sé staðfest.
Stefnir í hörku mót á ísnum! Áfram stelpur!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH