Sýnið aðgát næstu daga
Tími flugeldanna er runninn upp. Frá því í gær 28. desember og fram til 6. janúar nk. (að báðum dögum meðtöldum) er almenn notkun á skoteldum leyfð og því er ekki úr vegi að minna hestamenn á að fara öllu með gát næstu daga.
Gísli Sv. Halldórsson, dýralæknir skrifar grein um dýrahald og flugelda um áramót á vefsíðu Matvælastofnunnar í dag þar sem hann ráðleggur dýraeigendum að passa upp á að dýrin fari ekki sjálfum sér að voða eða valdi skaða í hávaðanum og ljósadýrðinni sem fylgir skrauteldunum. Þar segir m.a.:
“Hestum sem komnir gjöf í hesthúsum skal gefið vel, ljós haft kveikt og útvarp í gangi. Eigendur ættu einnig að vitja þeirra á þessum tíma. Útigangshrossum á að gefa vel og halda á kunnuglegum slóðum, þar sem þau fara sér síður að voða ef hræðsla grípur þau.”
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH