Sýnikennsla í með Jakobi Sigurðssyni
“Á miðvikudaginn 10.apríl n.k. kl. 20.30 verður haldin sýnikennsla með Jakobi Sigurðssyni í reiðhöllinni í Borgarnesi. Þar sem Jakob sýnir þjálfunaraðferðir sem hann notar. Jakob þarf vart að kynna, hann er einn okkar besti keppnis- og sýningarknapi. Var valinn íþróttaknapi 2012, m.a. tvöfaldur Íslands meistari.
Ekki missa af þessu frábæra tækifæri sem þarna gefst.
Að lokinni sýnikennslu verður kynning á hinni nýju keppnisgrein Töltfimi. Trausti Þór Guðmundsson mun þar miðla af sinni alkunnu snilld.
Miðaverð er kr. 2.500 , börn 6-12 ára kr. 1.000, yngri enn 6 ára frítt innifalið í miðaverði er happdrættismiði og eru margir góðir folatollar í vinning.
Allur ágóði rennur til reiðhallarinnar Faxaborgar.
Allir velkomnir,“ segir í tilkynnigu frá Stjórn Faxaborgar
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH