Sýnikennsla með Olil, Borba og Nils
Laugardaginn 20. janúar verður sýnikennsla með Nils Christian Larsen, Olil Amble og Júlio Borba á búgarðinum Flyinge Kungsgård í suður-Svíþjóð. Munu þau deila víðtækri þekkingu sinni og þjálfunaraðferðum á þessum fjögurra tíma viðburði. Flyinge Kungsgård er sögulegur staður í Svíþjóð. Hrossarækt hefur verið á staðnum síðan á 12. öld og er enn í dag ásamt því að bjóða upp á háklassa viðburði í hestamennsku. Á staðnum er stór reiðhöll sem getur tekið á móti 1600 áhorfendum.
Dyrnar opna kl 12:00 og byrjar sýnikennslan kl 13:00 og stendur til 18:00.
„Listamaðurinn og meistarinn Julio Borba mun leiðbeina okkur í gegnum grunnvinnu allt frá upphafi til enda, ábendingar, ásetur, vinnu frá jörðu og fleira. Olil Amble, heimsmeistari, Íslandsmeistari og margfaldur ræktunarmaður ársins á Íslandi ætlar að tala um ræktun og hvað það er sem er hún telur mikilvægt að leggja áherslu á þegar stefna á með hross í keppni. Henni til aðstoðar verð ég sem knapi,“ segir Nils Christian Larsen. „Við munum flétta þetta skemmtilega saman og bjóða upp á dag með mikilli gleði og skemmtun.“
Það verða frábær hross á sýningunni en þarna munu mæta Hersir frá Húsavík, Fenrir frá Feti, Gustur vom Kronshof, Órion vom Kronshof og Baltasar frá Sunnuholti. Einnig verður Miss M. sem er Grand Prix danskur varmblóðshestur og einn leynihestur.
Hægt er að panta miðar á www.afram.nu
Beint flug er til Kaupmannahafnar og þaðan er klukkutíma keyrsla til Flyinge. Hótel Elite Hotel Ideon býður upp á afslátt af gistingu fyrir áhorfendur á sýnikennslunni.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Skráning opin á Metamót Spretts