Sýnikennsla Ólafs Andra og Sigvaldar í kvöld
Hestamannafélagið Geysir stendur fyrir sýnikennslu í Rangárhöllinni í kvöld, þriðjudagskvöldið 25. apríl, og hefst kl. 20:00. Sýnikennslan er til styrktar fjölskyldu Guðjóns Björnssonar á Syðri-Hömrum sem lést af slysförum í mars.
Bræðurnir og reiðkennararnir Ólafur Andri og Sigvaldi Lárus Guðmundssynir munu leiða sýnikennsluna og mæta með ólík hross sem stefnt er með á hringvöllinn i vor og sumar. Þeir munu fara yfir áherslur og hvað þeir eru að vinna með og þjálfa þessa dagana.
Bræðurnir eru báðir menntaðir reiðkennarar frá hestafræðideild Háskólans á Hólum. Sigvaldi vinnur við reiðkennslu og tamningar og er með aðstöðu að Litlalandi í Ásahreppi og Ólafur Andri hefur starfað á Feti í Rangárþingi ytra síðan 2011. Þeir eru báðir félagar í Hestamannafélaginu Geysi.
Öll innkoma af sýnikennslunni rennur til styrktar fjölskyldu Guðjóns Björnssonar á Syðri- Hömrum í Ásahreppi.
Aðgangseyrir er 2500 krónur.
Á staðnum verða einnig til sölu happdrættismiðar í happdrætti sem hófst á Stóðhestaveislu Eiðfaxa.
Sjáumst sem flest í Rangárhöllinni á þriðjudagskvöld.

Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Skráning opin á Metamót Spretts