Takk, takk og aftur takk

  • 16. apríl 2023
  • Fréttir
Stóðhestaveislan 2023

Hin árlega Stóðhestaveisla Eiðfaxa fór fram í gærkvöldi í HorseDay höllinni á Ingólfshvoli og þökkum við staðarhöldurum fyrir gott samstarf. Eins og fyrri ár þá var uppselt á viðburðinn. Í ár var aðalstyrktaraðili viðburðarins Boli og þökkum við þeim stuðninginn.

Fjöldinn allur af frábærum hrossum komu þar fram. Við þökkum ræktendum, eigendum og knöpum þessara hrossa fyrir velvildina en án þeirra hefði sýningin aldrei orðið að veruleika.

Viljum við einnig þakka þeim fjölmörgu sem mikið lögðu á sig við undirbúning sýningarinnar og einnig þeim sem lögðu fram mikla og óeigingjarna vinnu á sýningarstað. Áhorfendum sem troðfylltu HorseDay höllina og sköpuðu stemmingu og andrúmsloft gleði, þökkum við fyrir komuna.  Ekki má svo gleyma þúsundum áhorfenda víðsvegar í heiminum sem fylgdust með veislunni í beinu streymi frá HorseDay höllinni.

Sú hefð hefur skapast að ágóði af Stóðhestaveislunni hefur verið látinn renna til góðgerðarmála og hægt væri hér að birta langan lista yfir góðgerðarsamtök sem notið hafa velvilja þeirra sem sótt hafa Stóðhestaveisluna á undanförnum árum. Stóðhestaveislan í gærkvöldi var engin undantekning. Að þessu sinni var hún tileinkuð börnunum og ekkjunni á Syðri – Hömrum í Rangárvallasýslu sem misstu föður sinn og eiginmann í hörmulegu slysi fyrir fáum vikum síðan. Stuðningur hestafólks og fyrirtækja sem tengjast hestaheiminum sem og annarra var að þessu sinni hreint ótrúlegur. Þessi mikli stuðningur við fjölskyldu Guðjóns sýnir enn og aftur hvað við sem þjóð stöndum saman og erum tilbúin til að leggja af mörkum þegar sárir og hörmulegir atburðir verða. Ekki liggur enn fyrir hve mikið safnaðist en ljóst er að það skiptir milljónum króna.

Okkur á Eiðfaxa er þakklæti efst í huga eftir gærkvöldið. Þakklæti til þeirra sem gáfu vinninga í happdrættið, gáfu folatolla í uppboðin, þeirra sem keyptu folatollana og happdrættismiðana og ekki síst til þeirra sem lögðu fram frjálsu framlögin á meðan á veislunni stóð. Einnig ber að minnast á vinahóp Guðjóns sem aðstoðuðu við framkvæmd happdrættisins.

Við viljum einnig þakka þulum kvöldsins þeim Ágústi Sigurðssyni og Hjörvari Ágústssyni, Óla Pétri sem var að vana í hurðinni. Björgvini í Prentmet fyrir sitt framlag, KUKL sem lánuðu myndavélarnar og tæknibúnaðinn, Óskari Nikulássyni og kvikmyndatökufólkinu Þurý Báru og Nikulási Dóra, Marinó Geir Lillendahl og útsendingarfólkinu, Karlakór Reykjavíkur fyrir skemmtun í hléinu og góðum vinum og félögum á Hellu við undirbúning viðburðarins. Allir þessir aðilar sem og aðrir sem að Stóðhestaveislunni komu gáfu vinnu sína í þeim tilgangi að standa við bakið á söfnuninni.

Takk fyrir okkur!

Enn er hægt að horfa á Stóðhestaveisluna HÉR

Viktoría Huld Hannesdóttir og hesturinn Þinur frá Enni voru ein af stjörnum sýningarinnar.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link