Tekið til kostanna 20.- 21. apríl

  • 2. apríl 2012
  • Fréttir
Tekið til kostanna 20.- 21. apríl

Hinir Skagfirsku hestadagar, Tekið til kostanna, fara fram á Sauðárkróki fyrstu helgi sumars.

 
Dagskráin stendur saman af vorsýningu kynbótahrossa, kennslusýningu reiðkennaraefna Hólaskóla og stórsýningarinnar Tekið til kostanna.  Þá verður Tekið til kostanna ball á Hótel Mælifelli á laugardagskvöldið.
 
Kynbótasýningin fer fram föstudaginn 20. apríl á Sauðárkróki og yfirlitssýning hefst kl: 10:00 laugardaginn 21.apríl.  Í kjölfarið  hefst reiðkennslusýning í Svaðastaðahöllinni þar sem nemendur á þriðja ári bjóða upp á metnaðarfulla dagskrá.  Á laugardagskvöldið er síðan stórsýningin – þar er lagt upp með fjölbreytt atriði með úrvals hross í aðalhlutverki.
 
Tekið er á móti skráningum á kynbótasýninguna á Leiðbeiningamiðstöðinni – 455-7100/[email protected]
 
Sýningarstjóri Tekið til kostanna er Eyþór Einarsson 862-6627.
 
Þessu tengt:

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link