Tekur gagnrýninni ekki persónulega
Það eru alltaf tvær hliðar á öllum málum. Reynt er að hafa skrif hér á vefnum málefnaleg og það skal tekið fram að allir þeir sem gagnrýna vilja skrif okkar er frjálst að senda athugasemdir til þess blaðamanns sem umfjöllunina skrifar og hún birt, en undir nafni sendanda að sjálfsögðu.
Árangur Johns Kristins í Meistaradeildinni hefur hlotið frekar neikvæða umfjöllun hér á Eiðfaxavefnum. Ákvað því undirritaður að svo báðar hliðar málsins kæmu fram að hafa samband við John og heyra hans hlið á árangri tímabilsins.
John sagði margar ástæður fyrir því ekki hefur gengið sem skildi með þá hesta sem hann hefur riðið. „Ein helsta ástæða þess að Konsert er ekki eins og hann var í fyrra er sú að fimmgangur var nú settur mánuði fyrr á dagskrá deildarinnar en í fyrra. Konsert hefði þurft aðeins lengri þjálfun til að vera jafn sterkur og hann var í fyrra. Það voru einnig mistök hjá mér að ríða honum á stöngum í 5-gangnum en hann hefur verið öruggari á skeiði á stöngum en ég náði ekki að hafa hann eins góðan á öðrum gangtegundum á þessum beislabúnaði“ sagði John en sagðist ekki hafa tekið gagnrýnina persónulega. Hann bætti svo við að hann ætlaði að mæta með Konsert á stóðhestaveisluna eftir nokkrar vikur og sýna þá hvað í þeim býr.
„Það var svo þannig að til stóð að ég riði öðrum hesti en Tóni í töltkeppninni í gær en sá hestur heltist og því var ákveðið að fá Tón lánaðan hjá Kára Steinssyni. Tónn er alls ekki í verra formi en í fyrra en hesturinn sem ég hugðist koma með datt út á síðasta degi og þess vegna náði ég engri æfingu með Tón. Hann var mjög góður í upphitun en eftir að inn var komið þá fór hann undir bitann á hægu tölti. Það tókst ekki með góðu að ná þeirri stillingu á höfuðburðinn sem ég vildi og ekki kom til greina að vera með groddaskap við þann mikla snilling sem Tónn er. Þeir Kári eiga eftir að gera frábæra hluti í framtíðinni líkt og þeir hafa gert fram að þessu.“ Sagði John að lokum
Óskum við John Kristni alls hins besta í keppni á tímabilinu sem framundan er og líklegt má telja að hrakföllin séu búin hjá þessum úrvalsknapa sem sannarlega hefur sýnt það að hann á fullt erindi meðal þeirra bestu.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH