Það besta á Vesturlandi

  • 13. apríl 2011
  • Fréttir
Það besta á Vesturlandi

Það besta úr ræktun Vestlenskra hrossaræktarbúa, stóðhestasýning, upprennandi Landsmótsgæðingar, hlýðniæfingar að hætti Reyni Aðalsteinssyni og ungir knapar af Vesturlandi eru meðal dagskráliða á Vesturlandssýningunni sem fram fer nk. föstudag, 15. apríl í Faxaborg í Borgarnesi.

Hestamannafélögin Dreyri, Glaður, Snæfellingur, Faxi og Skuggi og Hrossaræktarsamband Vesturlands standa að sýningunni sem mun sýna að Vestlendingar búa góðum og frambærilegum hestakosti og knöpum.

Á meðal dagskráliða eru ræktunarbússýningar frá Leirulæk, Hrísdal og Vestri-Leirárgörðum. Þá munu stóðhestar sem verða í notkun á Vesturlandi 2011 vera kynntir, vestlendskir stóðhestar stíga á stokk og þar ber að nefna Sólon frá Skáney sem mætir með afkvæmum. Félag Tamningamanna munu kynna félagsmenn sína á Vesturlandi, börn og unglingar sína listir sínar og Borgfirsku Skessurnar munu tölta nokkrar slaufur um Faxaborg.

Vesturlandssýningin hefst kl. 20 í Faxaborg.

Aðgangseyrir er 1.500 kr en frítt er fyrir 16 ára og yngri.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link