“Það er vissulega planið og vonandi náum við því”

  • 12. desember 2021
  • Fréttir
Hrossabændur teknir tali - Árbæjarhjáleiga

Nú þegar líða fer að jólum ætlar Eiðfaxi að stytta okkur stundirnar fram að jólum og taka nokkra ræktendur landsins á tali sem eru í óðaönn að undirbúa komandi tímabil.

Við byrjum á hrossaræktarbúinu Árbæjarhjáleigu en búið hefur getið að sér gott orðspor sem eitt fremsta ræktunarbú landsins en það var m.a. valið keppnishestabú ársins 2020.

Það voru þau Kristinn Guðnason og Marjolijn Tiepen sem hófu hrossarækt í Árbæjarhjáleigu og sáu um rekstur búsins en nú hefur dóttir þeirra Hekla Katharína Kristinsdóttir og eiginmaður hennar Eiríkur Vilhelm Sigurðsson tekið við rekstrinum. “Mamma og pabbi hófu búskap í Árbæjarhjáleigu árið 1992. Jörðin er ca. 110 ha. en við leigjum einnig beitiland í nágrenninu ásamt því að pabbi hefur líka aðgang að Skarði. Við erum með rúmlega 100 hross á jörðinni, aðeins frá öðrum en flest eru frá okkur. Hesthúsið tekur síðan 40 hross” segir Hekla. Kristinn, faðir Heklu, er ættaður frá Skarði og bjó þar um langt skeið en ræktun þeirra byggir í grunninn á Ófeigsdætrum frá Skarði í Landsveit og Þokkadætrum sem Marjolijn kom með inn í ræktunina á sínum tíma. “Þarna blandast Jarl mjög skemmtilega en hann er úr þessari blöndu, Ófeigi og Þokka. Jarl er undan Stála frá Kjarri sem er barnabarn Ófeigs og síðan er móðir Jarls, Elding frá Árbæjarhjáleigu II, undan Þokkadótturinni Fánu frá Hala. Elding er að skila okkur mjög góðum hrossum, sérstaklega stóðhestum, og er í lagi að segja að hún sé ein helsta ræktunarhryssan okkar,” segir Hekla en Elding hefur nú þegar gefið fjóra hátt dæmda stóðhesta; Jarl (ae. 8,78), Árvak (ae. 8,36, f. Kiljan frá Steinnesi), Hilmi (ae. 8,64, f: Spuni frá Vesturkoti) og Þór (ae. 8,24, f. Stormur frá Herríðarhóli). “Mig langar líka að nefna Ósk frá Lækjarbotnum, Nútíð frá Skarði og Þökk frá Árbæjarhjáleigu. Við erum að temja fyrsta afkvæmið okkar undan Þökk, Þoka heitir hún, en Þökk sjálf fór í mjög háan dóm fjögurra vetra. Þoka er síðan síðasta afkvæmi Vígars. Við erum spennt fyrir að sjá hvernig hún þróast. Við Eiríkur bindum líka miklar vonir við Furu frá Árbæjarhjáleigu og erum spennt að fara temja undan henni,” segir Hekla en þau fá í kringum 15 – 18 folöld á ári. 

“Í sumar héldum við tveimur hryssum undir Hannibal frá Þúfum, einnig notuðum við Stála frá Kjarri, Jarl að sjálfsögðu, Glampa frá Kjarrhólum, Ljúf frá Torfunesi og við fórum með Heklu, móðir Kjarks frá Árbæjarhjáleigu, undir Krókus frá Dalbæ. Mjög spennandi pörun það,” segir Hekla og bætir við; “við héldum auðvitað líka undir Blesa frá Heysholti en hann er í miklu uppáhaldi, ofboðslega góður og skemmtilegur hestur.” Í sumar fengu þau undan mörgum spennandi stóðhestum þ.á.m. Kveik frá Stangarlæk, Ljúf frá Torfunesi og Álfaklett frá Syðri-Gegnishólum. “Elding kom með stóðhestefni undan Álfaklett og svo fór ég með Lukku mína undir Jarl en Lukka er með 9,5 fyrir skeið. Ég fékk undan þeim hest sem fær nafnið Sprettur en hann tekur þvílíka skeiðspretti,” segir Hekla.  

Það er nóg um að vera hjá landsliðsþjálfaranum Heklu en ásamt því starfi er hún með fullt hús af hrossum í tamningu og þjálfun. “Ég vona að það séu einhverjar stjörnur í hópnum en mér finnst nú oftast best að segja ekki of mikið. Í hreinskilni sagt var ég ekki mjög spennt fyrir tryppa hópnum í haust og var farið að renna á mig tvær grímur. Ég hugsaði með sjálfri mér hvort þetta væri bara ekki spennandi hópur en eftir einn og hálfan mánuð af tamningu þá fór mér að lítast betur á þetta og eru þarna einhver spennandi trippi. Ég er verulega spennt fyrir einu stóðhestsefni undan Sveini-Hervari og Ósk frá Lækjarbotnum. Ég er líka með góðan Hrannarsson, Dýra frá Hellu, mjög efnilegur en hann er í eigu vina okkar Týra og Lilju í Þýskalandi. Virkilega flottur foli undan Vilmundardóttur,” segir hún. 

Kjarkur og Jarl frá Árbæjarhjáleigu II eru líklega nafntoguðustu einstaklingarnir úr ræktuninni í dag en Jarl er einn af líklegum heiðursverðlauna hestum á Landsmóti á næsta ári. Jarl er með 119 stig í kynbótamati og á nú þegar 39 sýnd afkvæmi og vantar því 11 afkvæmi uppá. “Það er vissulega planið og vonandi náum við að koma honum í heiðursverðlaun. Það er svolítið bratt en við erum aðeins búin að vera sigta út hross og vonumst til að þetta náist. Þetta er stærsti draumur móður minnar. Ég ætla að reyna að hafa mörg á járnum í hesthúsinu og við sjáum svo til hvað gerist,” segir Hekla Katharína sem er að vonum orðin spennt fyrir Landsmóti enda engin stórmót verið haldin í langan tíma. Við endum þetta viðtal á nokkrum jólalegri spurningum;

Uppáhalds jólasveinn:

Bjúgnakrækir … það er tilfallandi því Vilhelm Bjartur sonur okkar fékk það hlutverk að læra allt um hann fyrir jólin og því erum við margs vísari um þann sveinka!

Uppáhalds jólahefð:

Við erum að þróa okkar eigin hefðir fjölskyldan en við td förum og sækjum okkur jólatré í Bolholtsskógi. Merkingarmesta jólahefðin er þó sú að við höldum jólin líka hátíðleg á jóladag með mömmu og pabba. Það er sótt frá því að mamma er frá Hollandi.

Matur á aðfangadag:

Humar í forrétt.
Innbakað lambafillé með gráðosti og sultuðum rauðlauk og meðlæti í aðalrétt.
Heimagerður ís í eftirrétt

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link