Það verður mikið að gera í vetur!
Eiðfaxi kom við í dag hjá Faxahestum í Víðidalnum en það er fyrirtæki sem hjónin…
Helgi Leifur Sigmarsson og Arna Rúnarsdóttir reka ásamt börnum sínum. Í hesthúsi Faxahesta er meðal annars sundlaug og hlaupabretti fyrir hross ásamt þurk klefa, sannkallað „spa“
Arna var að sinna hrossum sem voru í sjúkraþjálfun er Eiðfaxa bar að garði.
„Hingað koma mikið af hrossum í þjálfun eða endurhæfingu eftir aðgerðir sem þau hafa þurft að gangast undir vegna slysa eða veikinda“.
Hvað með þjálfun stálsleginna keppnishrossa, er hún að komast í gang?
„Ekki ennþá, en mikið hefur verið pantað og hefst það starf í desember. Það er orðið mjög vinsælt að hefja vetrarþjálfunina á sundi og brettinu. Það gefur hrossunum góðan styrk svona í grunnin og undirbýr þau vel fyrir frekari þjálfun“ segir Arna.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH