Þeir allra sterkustu
Tveir síðustu stóðhestarnir sem kynntir verða á Ístölti þeirra allra sterkustu koma hér. Þetta eru stórættaðir hestar og hafa vakið mikla athygli báðir tveir.
Sæmundur frá Vesturkoti verður 6 vetra í vor. Hann er brúnn alhliðahestur, undan Sædyn frá Múla og Stelpu frá Meðalfelli. Sæmundur hefur hloti 9.0 fyrir tölt, vilja og geðslag og fegurð í reið. Ræktandi er Finnur Ingólfsson en eigandi er Kári Finnur Auðunsson. Knapi er Þórarinn Ragnarsson.
Lexus frá Vatnsleysu er brúntvístjörnóttur ósýndur foli á fimmta vetur undan Hróðri frá Refsstöðum og Lydíu frá Vatnsleysu. Lexus er úr ræktun Björns Friðriks Jónssonar á Vatnsleysu og í eigu Hesta ehf. Knapi er Ævar Örn Guðjónsson.
Miðasala á Ístöltið er í fullum gangi og afgreiðslufólk hestavöruverslananna er í óðaönn að afgreiða miða. Það er því óhætt að hvetja fólk til að tryggja sér miða á fjörið við fyrsta tækifæri áður en það verður uppselt!
Nú er einnig ráslisti ístöltsins sjálfs tilbúinn og hér má sjá hann:
Holl Knapi Félag Hestur
1 Anna Kristín Friðriksdóttir Hringur IS2001165052 – Glaður frá Grund
1 Siguroddur Pétursson Snæfellingur IS2007137718 – Hrynur frá Hrísdal
1 Janus Halldór Eiríksson Ljúfur IS2004187644 – Barði frá Laugarbökkum
2 Örn Karlsson Ljúfur IS2005187030 – Óðinn frá Ingólfshvoli
2 Skúli Ævarr Steinsson Sleipnir IS2004182297 – Luxus frá Eyrarbakka
2 Ragnhildur Haraldsdóttir Hörður IS2007157277 – Þróttur frá Tungu
3 Logi Þór Laxdal Fákur IS2006201042 – Arna frá Skipaskaga
3 Hulda Gústafsdóttir Fákur IS2005175333 – Flans frá Víðivöllum fremri
3 Jakob Svavar Sigurðsson Dreyri IS2007282570 – Helga-Ósk frá Ragnheiðarstöðum
4 Guðmundur Björgvinsson Geysir IS2003286179 – Brynja frá Bakkakoti
4 Eyrún Ýr Pálsdóttir Sleipnir IS2003158605 – Reynir frá Flugumýri
4 Leó Geir Arnarson Fákur IS2004284537 – Krít frá Miðhjáleigu
5 Sigurður Óli Kristinsson Geysir IS2006235515 – Kná frá Nýjabæ
5 Matthías Leó Matthíasson Sleipnir IS2006186703 – Kyndill frá Leirubakka
5 Valdimar Bergstað Fákur IS2004165101 – Týr frá Litla-Dal
6 Ríkharður Flemming Jensen Sprettur IS2007167140 – Leggur frá Flögu
6 Sigurbjörn Bárðarson Fákur IS2004287050 – Katrín frá Vogsósum 2
6 Vilfríður Sæþórsdóttir Fákur IS2004165035 – Óson frá Bakka
7 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Hörður IS2006267160 – Spretta frá Gunnarsstöðum
7 Sigurður Vignir Matthíasson Fákur IS2001180600 – Ómur frá Hemlu II
7 Gústaf Ásgeir Hinriksson Fákur IS2005166013 – Fjölnir frá Akureyri
8 Skúli Þór Jóhannsson Sörli IS2007284950 – Álfrún frá Vindási
8 Hinrik Bragason Fákur IS2006288861 – Þyrla frá Böðmóðsstöðum 2
8 Sigurður Sigurðarson Geysir IS2005186931 – Jakob frá Árbæ
9 Viðar Ingólfsson Fákur IS2002135567 – Segull frá Mið-Fossum 2
9 Jón Ó Guðmundsson Sprettur IS2006125427 – Draumur frá Hofsstöðum, Garðabæ
9 Þórarinn Ragnarsson Smári IS2002188902 – Þytur frá Efsta-Dal II
10 Hans Þór Hilmarsson Geysir IS2007288501 – Síbíl frá Torfastöðum
10 Erling Ó. Sigurðsson Sprettur IS2004225239 – Gletta frá Laugarnesi
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH