Þórarinn mætir suður
Þórarinn Eymundsson er nýr liðsmaður í liðið Ganghesta/ Margrétarhofs en hann kemur í staðinn fyrir Aðalheiði Önnu Guðjónsdóttur. Þórarinn er búsettur á Sauðárkróki þar sem hann stundar tamningar og reiðkennslu. Hann er því annar norðanmaðurinn til að taka þátt í Meistaradeild í hestaíþróttum. Þórarinn hefur átt góðu gengi að fagna í Meistaradeild Norðurlands eða KS deildinni. Hann sigraði einstaklingskeppnina í fyrra en hann er í liði Hrímnis sem sigraði einnig liðakeppnina.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH