Þórarinn og Þráinn stóðu efstir
Þórarinn og Þráinn sigurðu keppni i fimmgangi í Meistaradeild KS, á myndinni eru þeir í keppni á Landsmóti 2022. Ljósmynd: KollaGr
Keppni í fimmgangi í Meistaradeild KS fór fram í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki í gærkvöldi, var þetta þriðja mótið í keppninni í vetur.
Að loknum úrslitum var það ljóst að sigurvegarar kvöldsins voru þeir Þórarinn Eymundsson og Þráinn frá Flagbjarnarholti með 7,21 í einkunn. Litlu munaði á fjórum efstu sætunum en í öðru sæti varð Bjarni Jónasson á Spennanda frá Fitjum með 7,19, í þriðja sæti varð Metta Mannseth á Kalsa frá Þúfum með 7,17 og í því fjórða Þórdís Inga Pálsdóttir á Nótu frá Flugumýri II með 7,14 í einkunn.
Stigahæsta lið kvöldsins var lið Hrímnis/Hestkletts með 65 stig en auk Þórarins kepptu fyrir hönd liðsins þau Þórdís Inga Pálsdóttir á Nótu frá Flugumýri II og Kristófer Darri Sigurðsson á Ás frá Kirkjubæ.
| A úrslit | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Þórarinn Eymundsson | Þráinn frá Flagbjarnarholti | 7,21 |
| 2 | Bjarni Jónasson | Spennandi frá Fitjum | 7,19 |
| 3 | Mette Mannseth | Kalsi frá Þúfum | 7,17 |
| 4 | Þórdís Inga Pálsdóttir | Nóta frá Flugumýri II | 7,14 |
| 5 | Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal | Sindri frá Lækjamóti II | 6,83 |
| B úrslit | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 6 | Thelma Dögg Tómasdóttir | Mozart frá Torfunesi | 6,74 |
| 7 | Barbara Wenzl | Bylgja frá Bæ | 6,69 |
| 8 | Ásdís Ósk Elvarsdóttir | Skúmur frá Skör | 6,60 |
| 9 | Vignir Sigurðsson | Gjöf frá Syðra-Brekkukoti | 6,48 |
| 10 | Erlingur Ingvarsson | Goði frá Torfunesi | 6,40 |
| 11 | Kristófer Darri Sigurðsson | Ás frá Kirkjubæ | 6,29 |
| Forkeppni | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Mette Mannseth | Kalsi frá Þúfum | 7,10 |
| 2 | Þórarinn Eymundsson | Þráinn frá Flagbjarnarholti | 7,00 |
| 3 | Bjarni Jónasson | Spennandi frá Fitjum | 6,83 |
| 4 | Þórdís Inga Pálsdóttir | Nóta frá Flugumýri II | 6,70 |
| 5 | Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal | Sindri frá Lækjamóti II | 6,67 |
| 6 | Erlingur Ingvarsson | Goði frá Torfunesi | 6,63 |
| 7 | Barbara Wenzl | Bylgja frá Bæ | 6,60 |
| 8 | Kristófer Darri Sigurðsson | Ás frá Kirkjubæ | 6,57 |
| 9 | Thelma Dögg Tómasdóttir | Mozart frá Torfunesi | 6,47 |
| 10-11 | Vignir Sigurðsson | Gjöf frá Syðra-Brekkukoti | 6,43 |
| 10-11 | Ásdís Ósk Elvarsdóttir | Skúmur frá Skör | 6,43 |
| 12 | Ingunn Ingólfsdóttir | Korgur frá Garði | 6,27 |
| 13 | Þorsteinn Björn Einarsson | Rjóður frá Hofi á Höfðaströnd | 6,23 |
| 14 | Elvar Einarsson | Snælda frá Syðra-Skörðugili | 6,17 |
| 15 | Freyja Amble Gísladóttir | Stimpill frá Þúfum | 6,13 |
| 16 | Lea Christine Busch | Síríus frá Þúfum | 6,10 |
| 17 | Höskuldur Jónsson | Aðall frá Sámsstöðum | 5,93 |
| 18 | Þorvaldur Logi Einarsson | Rut frá Hestkletti | 5,60 |
| 19-20 | Björg Ingólfsdóttir | Lyfting frá Dýrfinnustöðum | 5,50 |
| 19-20 | Guðmar Freyr Magnússon | Birta frá Íbishóli | 5,50 |
| 21-22 | Magnús Bragi Magnússon | Rosi frá Berglandi I | 5,47 |
| 21-22 | Þórey Þula Helgadóttir | Kjalar frá Hvammi I | 5,47 |
| 23 | Atli Freyr Maríönnuson | Þula frá Bringu | 5,43 |
| 24 | Agnar Þór Magnússon | Vakandi frá Sturlureykjum 2 | 5,13 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH