Þrír hestar hljóta heiðursverðlaun í ár
Sjóður frá Krikjubæ stendur efstur hesta til að hljóta heiðursverðlaun fyrir afkæmi í ár. Knapi Teitur Árnason
Til að stóðhestur hljóti heiðursverðlaun fyrir afkvæmi verður hann að uppfylla tvö skilyrði; 118 stig í kynbótamati og 50 dæmd afkvæmi. Í framhaldi af því að hross hljóta nú tvær aðaleinkunnir, með og án skeiðs, eru stóðhestum sem hljóta 118 stig eða meira í aðaleinkunn kynbótamats án skeið nú líka veitt afkvæmaverðlaun. Áfram verður þó miðað við aðaleinkunn kynbótamatsins þegar hestum er raðað í verðlaunasæti á stórmótum.
Þrír stóðhestar hljóta heiðursverðlaun fyrir afkvæmi í ár en það eru þeir Sjóður frá Kirkjubæ, Konsert frá Hofi og Hnokki frá Fellskoti. Þessir hestar fá allir afkvæmaorð birt í WorldFeng en Sjóður er sá eini sem á möguleika á því að verða síðan verðlaunaður á næsta Landsmóti, ef hann stenst enn kröfur til afkvæmaverðlauna, þar sem hann er sá eini sem er enn á landinu.
Þeir hestar sem hljóta heiðursverðlaun fyrir afkæmi árið 2021
| Nafn | Uppruni | Ae. | Ae. án skeiðs | Fj. afkvæma |
| Sjóður | Kirkjubæ | 122 | 120 | 50 |
| Konsert | Hofi | 118 | 110 | 66 |
| Hnokki | Fellskoti | 118 | 115 | 73 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH