Þróun eða glapræði?
Nýtt form kynbótasýninga á Landsmóti verður til umræðu í fyrsta tölublaði Eiðfaxa árið 2012.
Mikið hefur verið rætt um nýtt fyrirkomulag á kynbótasýningum á LM2012 í Reykjavík. Í dómnum hafa knapar 8 ferðir í stað 10 í hefðbundinni sýningu og yfirlit fer fram á hringvelli þar sem þrjú hross verða inn á líkt og í hefðbundinni yfirlitssýningu. Þrír hringir verða riðnir á hringnum og ein ferð á beinu brautinni.
Óhætt er að segja að rökrætt sé um nýju breytingarnar og í veglegri grein verður farið yfir þessar breytingar og þýðingu þeirra, gagnrýnina sem hún hefur fengið, óvissuþætti og kosti þeirra.
Guðlaugur Antonsson rökstyður ákvörðun Fagráðs í hrossarækt um breytingarnar og Óðinn Örn Jóhannsson fær álit nokkurra knapa og aðstandenda kynbótahrossa um þetta nýja fyrirkomulag. Þar leggja Anton Páll Níelsson, Bergur Jónsson, Guðmundur Björgvinsson og Eva Dyröy, Gunnar Arnarsson og Kristbjörg Eyvindsdóttir, Jakob Svavar Sigurðsson og Þórður Þorgeirsson orð í belg.
Grein sem enginn atvinnu- né áhugamaður um kynbótadóma má láta fram hjá sér fara.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári