Til minningar um Harald Sveinsson

  • 5. mars 2022
  • Fréttir

Haraldur Sveinsson bóndi á Hrafnkelsstöðum 1 í Hrunamannahreppi lést miðvikudaginn 23.febrúar en útför hans fer fram frá Skálholtsdómkirkju í dag, laugardaginn 5.mars, klukkan 13:00.

Haraldur var fæddur þann 15.september árið 1941 og var ávallt sýnilegur á sviði hestamennskunnar bæði sem félagsmálamaður, tamningamaður og hrossaræktandi. Hann var virkur þátttakandi í framfarasögu íslenskrar hrossaræktar á þessari og síðustu öld.

Hann rak ásamt eftirlifandi konu sinni, Jóhönnu Bríeti Ingólfsdóttur, tamningastöð á Hrafnkelsstöðum og voru þau þekkt um land allt fyrir skipulag, dugnað, vönduð vinnubrögð og hreinlæti. Úr ræktun þeirra hafa komið mörg hátt dæmd hross sem bera hróður þeirra hjóna víða.

Haraldur er gullmerkishafi LH og var alla tíð virkur í starfi Hestamannafélagsins Smára. Þá var hann formaður og framkvæmdarstjóri Hrossaræktarsamtaka suðurlands um langt skeið og vann það starf af trúmennsku og dugnaði svo eftir var tekið. Auk þeirra starfa sem á undan eru talin vann hann fjölmörg önnur trúnaðarstörf fyrir hestamenn með sama hætti og lýst er.

Hestamenn kveðja í dag höfðingja úr sínum röðum og votta Jóhönnu Bríeti, börnum, barnabörnum og öðrum er þekktu sómamanninn Harald á Hrafnkelsstöðum samúð sína.

Streymt verður beint frá athöfninni hér: https://youtu.be/AXT22uaNO_U

 

Haraldur situr hér Gáska frá Hofsstöðum

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link