Tilboð á beinu streymi af Heimsmeistaramótinu
Heimsmeistaramótið í Oirschot í Hollandi verður dagana 7. – 13. ágúst. Fyrir þá sem ekki komast til Hollands munu geta horft á Heimsmeistaramótið í beinni útsendingu en sýnt verður beint bæði frá keppnis- og kynbótabrautinni alla vikuna inn á Alendis.is
Afsláttur er af streyminu til 1. júlí en fyrir þann tíma geturðu keypt alla vikuna á €49. Annars er verðið €59 fyrir vikuna eða helgin á €44.
Það er Alendis sem mun sýna frá mótinu en þar sem þeir framleiða ekki efnið er Heimsmeistaramótið ekki innifalið í áskrift Alendis. Þannig að þó þú sért áskrifandi þá þarftu að kaupa aðgang að Heimsmeistaramótinu sér.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH