„Tilfinning er ótrúleg það er ekki hægt að lýsa henni“
„Þetta er ótúrleg tilfinning. Það er ekki hægt að lýsa henni. Ég var ekki öruggur með sigurinn því það er fullt af góðum hestum í úrslitunum en þetta var stefna í fjögur ár og glæsilegt að þetta skildi takast núna,“ segir Benedikt sem varð hálf meyr þegar koma í ljós að hann og Biskup frá Ólafshaga væru að sigra Landsmót í annað sinn. Ungmennaflokk í þetta skiptið en þeir sigruðu unglingaflokkinn á síðasta móti.
„Algjör gæðingur. Maður getur ekki beðið um meira í einum hesti, rými, geðgóður, litur. Hann hefur allan pakkann.“ en þeir Biskup og Benedikt stefna á Íslandsmót eftir tvær vikur og svo er aldrei að vita hvort þeir verði í Landsliði Íslands á næsta Heimsmeistaramóti.
Það var mjótt á munum í úrslitunum en eftir hæga töltið og brokkið voru þau Glódís Rún Sigurðardóttir á Drumbi frá Víðivöllum fremri efst en þeir Benedikt og Biskup áttu frábæra sýningu á greiða töltinu sem tryggði þeim sigurinn, með 8,80 í einkunn. Glódís endaði önnur með 8,76 í einkunn og þriðja varð sigurvegari b úrslitanna Katla Sif Snorradóttir á Flugari frá Morastöðum með 8,72 í einkunn.
Signý Sól Snorradóttir hlaut EYJA armbandið sem EYJA (fyrrum Isibless.de) gefur því ungmenni sem þeim þykir skara framúr í reiðmennsku.
A úrslit – Ungmennaflokkur – Niðurstöður
Sæti Knapi Hross Aðildarfélag knapa Einkunn
1 Benedikt Ólafsson Biskup frá Ólafshaga Hörður 8,80
2 Glódís Rún Sigurðardóttir Drumbur frá Víðivöllum fremri Sleipnir 8,76
3 Katla Sif Snorradóttir Flugar frá Morastöðum Sörli 8,72
4 Kristján Árni Birgisson Rökkvi frá Hólaborg Geysir 8,67
5 Signý Sól Snorradóttir Kolbeinn frá Horni I Máni 8,67
6 Stefanía Sigfúsdóttir Lottó frá Kvistum Skagfirðingur 8,61
7 Eysteinn Tjörvi K. Kristinsson Laukur frá Varmalæk Þytur 8,51
8 Freydís Þóra Bergsdóttir Ösp frá Narfastöðum Skagfirðingur 8,50
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH