Landsamband hestamanna Tilkynning frá Fjólu Kristinsdóttur

  • 18. október 2024
  • Tilkynning Fréttir

Fjóla Kristinsdóttir Ljósmynd: Aðsend

Dregur framboð sitt til baka

Fjóla S. Kristinsdóttir, sem tilkynnti um framboð sitt til formanns LH í síðustu viku, hefur nú dregið framboð sitt til baka. Sendi hún eftirfarandi fréttatilkynningu um það á Eiðfaxa.

Í ljósi þeirra vendinga sem átt hafa sér stað í landspólitíkinni síðustu daga sé mér ekki annað fært en að draga framboð mitt til formanns Landssambands hestamannafélaga til baka. Ég ber fullt traust til þeirra aðila sem hafa boðið sig fram til formans og stjórnar en það er fátt mikilvægara þeirri lýðræðisveislu sem kosningar eru en að hafa val.

Ég vill þakka öllum þeim aðilum sem hafa aðstoðað og stutt mig fyrir ómetanlegan stuðning og óska formanni og stjórn Landssambands hestamannafélaga góðs gengis hér eftir sem hingað til!

Það er því ljóst að það verða þau Guðni Halldórsson og Linda B. Gunnlaugsdóttir sem verða í kjöri til formanns á Landsþingi LH.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar