Tilkynning frá LH og Hestamannafélaginu Sörla

  • 25. júní 2010
  • Fréttir
Tilkynning frá LH og Hestamannafélaginu Sörla

Í ljósi þeirra aðstæðna sem nú eru uppi í hestasamfélaginu var ákveðið eftir samráðsfund hagsmunaaðila í hestamennsku að best væri að fresta Íslandsmóti fullorðinna í hestaíþróttum til 25.-28. ágúst n.k.

Þessi ákvörðun var tekin í ljósi þess að enn eru veik hross um allt land en jafnframt einhver hross komin í þjálfun, er mótinu því frestað svo fleiri geti tekið þátt.

 Baráttukveðjur,
Stjórn Landsambands hestamannafélaga
Hestmannafélagið Sörli
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link