Tilnefning um knapa ársins

  • 3. janúar 2015
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Knapar ársins 2014 á Uppskeruhátíð hestamanna.

Nefnd um knapaval og viðurkenningar LH á Uppskeruhátíð hestamanna hefur nú skilað af sér tilnefningum um knapa ársins og ræktunarbú keppnishrossa 2014.

Fimm knapar eru tilnefndir í hverjum flokki en flokkarnir eru: íþróttaknapi, skeiðknapi, gæðingaknapi, kynbótaknapi, efnilegasti knapinn og knapi ársins.  Við valið er litið til árangurs knapa á árinu, hér heima sem erlendis. Knapi ársins í hverjum flokki er valinn sá sem talinn er hafa náð framúrskarandi árangri og frammistaða hans sé álitin reiðmennskunni til framdráttar. Í flokkinum Ræktunarbú keppnishrossa eru tilnefnd þau ræktunarbú sem hafa skilað flestum hrossum í keppni eða sýnt árangur sem eftir er tekið.

 

Allir tilnefndir verða heiðraðir á Uppskeruhátíð hestamanna í Gullhömrum, Grafarholti þann 10. janúar næstkomandi og þá kemur einnig fram hver hampar titlinum í hverjum flokki fyrir sig.

Tilnefningar eru eftirfarandi:

 

Kynbótaknapar:

–         Agnar Þór Magnússon  
–         Árni Björn Pálsson
–         Daniel Jónsson
–         Jakob Svavar Sigurðsson
–         Olil Amble

 

Skeiðknapar: 

–         Bjarni Bjarnason
–         Daniel Ingi Smárason
–         Sigurbjörn Bárðarson 
–         Teitur Árnason
–         Vigdís Matthíasdóttir

 

Íþróttaknapar:

–         Árni Björn Pálsson
–         Eyjólfur þorsteins
–         Haukur Baldvinsson  
–         Jóhann Rúnar Skúlason
–         Reynir Örn Pálmason

 

Gæðingaknapar:

–         Gísli Gíslason
–         Sigurður Óli Kristinsson
–         Sigurður Sigurðsson
–         Steingrímur Sigurðsson
–         Þórarinn Ragnarsson

 

Efnilegasti knapinn:

–         Guðmunda Ellen Sigurðardóttir
–         Gústav Ásgeir Hinriksson
–         Jóhanna Margrét Snorradóttir
–         María Gyða Pétursdóttir
–         Róbert Bergmann

 

Knapi ársins:

–         Árni Björn Pálsson
–         Daniel Jónsson
–         Reynir Örn Pálmason
–         Sigurður Sigurðarson
–         Þórarinn Ragnarsson

Ræktun Keppnishrossa LH 2014

–         Fet
–         Flugumýri
–         Skriða
–         Syðri Gegnishólar/Ketilsstaðir
–         Þóroddsstaðir

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link