Er rétt að fella niður hæstu og lægstu einkunn í dómgæslu hestamóta?

  • 6. nóvember 2026
  • Aðsend grein

Frá verðlaunaafhendingu í gæðingakeppni á Landsmótinu í sumar

Hugleiðingar um dómgæslu í gæðingakeppni

Á Landsþingi hestamanna síðastliðna helgi var lögð fram og samþykkt tillaga um að fella niður hæstu og lægstu einkunn dómara þegar fimm dómarar dæma Gæðingakeppni. Samþykkt þessi vekur upp mikilvægar spurningar um dómgæslu, sanngirni, gæði á dómgæslu og ekki síst hvaða skilaboð við viljum senda um góða reiðmennsku og hestavelferð.

Eitt af meginatriðunum í umræðunni er það að góðir dómarar nýta dómskalann til fulls. Þeir gefi háar einkunnir þegar vel er gert og láti einkunnirnar sömuleiðis endurspegla þegar frammistaðan er ekki góð. Með því að fella niður hæstu og lægstu einkunn er í raun verið að draga úr vægi þeirra dómara sem þora að nýta dómskalann og standa fast við faglegt mat sitt.

Því er ekki að neita að dómarar geta gera mistök. Það eru einmitt rökin sem helst hafa verið nefnd fyrir því að fella niður hæstu og lægstu einkunn. En að mínu mati hafa ekki komið fram nægilega sterk tölfræðileg eða fagleg rök sem réttlæta þessa breytingu.

Hver eru raunveruleg áhrif breytingarinnar?

Ég hef sjálfur reiknað út niðurstöður frá Landsmótinu í sumar, að áhugamannaflokknum undanskildum. Við útreikningana notaði ég sama reiknilíkan og notað er í íþróttakeppnum. Það felur í sér að hæsta og lægsta aðaleinkunn er felld út í milliriðlum og hæsta og lægsta einkunn á hverri gangtegund er felld út í úrslitum.

Niðurstaðan er sú að munurinn á útreikningunum var óverulegur. Að mínu mati er sá munur einfaldlega ekki nægilega mikill til að réttlæta jafn umfangsmikla breytingu á fyrirkomulagi dómgæslunnar.

Ef markmiðið er að auka sanngirni og draga úr áhrifum einstakra mistaka dómara verðum við að spyrja okkur hvort þessi breyting nái því markmiði í raun. Það er ekki nóg að breyting hljómi vel í orði; hún þarf að byggjast á faglegum og tölfræðilegum rökum.

Hvað með hestavelferð og góða reiðmennsku?

Mér finnst sérstaklega mikilvægt að skoða þessa breytingu í samhengi við þá umræðu sem hefur verið í gangi um hestavelferð og mikilvægi þess að verðlauna góða reiðmennsku.

Góðir dómarar eru ekki aðeins að meta gangtegundir. Þeir eru einnig að meta hvernig knapinn fer með hestinn. Þeir geta brugðist við grófri reiðmennsku með lægri einkunnum og á sama tíma verðlaunað framúrskarandi reiðmennsku með háum einkunnum.

Ef við fellum niður hæstu og lægstu einkunn er hætt við að við drögum úr vægi þeirra dómara sem taka skýra afstöðu til þessara þátta. Þannig gæti verið verið að veikja eitt mikilvægasta verkfærið sem við höfum til að stuðla að bættri reiðmennsku og aukinni hestavelferð.

Við eigum að hvetja dómara til að nýta dómskalann, ekki draga úr vægi þeirra sem gera það.

Hættan á færri fimm dómara mótum

Það er einnig ástæða til að velta fyrir sér hvaða áhrif þessi breyting gæti haft á framkvæmd móta í framtíðinni.

Ég tel að hætta sé á að mótshaldarar muni í auknum mæli velja að halda þriggja dómara mót í stað fimm dómara móta. Ef hæstu og lægstu einkunnir tveggja dómara eru felldar út þegar fimm dómarar dæma, gæti það dregið úr ávinningnum af því að hafa fimm dómara til staðar.

Það væri óheppileg þróun ef breyting sem á að auka áreiðanleika og sanngirni dómgæslunnar myndi á endanum leiða til þess að færri dómarar kæmu að dómgæslu móta.

Að lokum

Að mínu mati eigum við að fara varlega í breytingar á dómgæslukerfinu, sérstaklega þegar ekki liggja fyrir skýr og sannfærandi rök fyrir þeim.

Við eigum að byggja breytingar á gögnum, tölfræði og faglegri umræðu en ekki eingöngu á þeirri forsendu að með því að fella út hæstu og lægstu einkunn sé sjálfkrafa verið að gera dómgæsluna réttlátari.

Við þurfum að spyrja okkur hvað við viljum verðlauna í íslenskri hestamennsku. Viljum við dómskerfi sem gefur dómurum svigrúm til að verðlauna framúrskarandi frammistöðu og taka afstöðu gegn slæmri reiðmennsku? Eða viljum við kerfi þar sem slíkir dómar hafa minna vægi?

Ég tel að við eigum að standa vörð um faglegt sjálfstæði dómara, hvetja þá til að nýta dómskalann og tryggja að góð reiðmennska og velferð hestsins séu áfram í forgrunni.

Breytingar á dómgæslu eiga að bæta kerfið – ekki draga úr vægi góðrar dómgæslu.

Höfundur greinar er Valdimar Magnús Ólafsson Landsdómari í gæðingakeppni

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link