Tilþrif og stemning á Barkamótinu
Arna Ýr Guðnadóttir á Þrótti frá Fróni sigraði með glæsibrag opna flokkinn á Barkamótinu, sem fram fór í Reiðhöllinni í Víðidal á laugardagskvöld. Kjartan Guðbrandsson á Sýni frá Efri-Hömrum stóð uppi sem sigurvegari í áhugamannaflokki og Ellen María Gunnarsdóttir á Lyftingu frá Djúpadal endurtók leikinn frá því í fyrra og varð efst í flokki 17 ára og yngri.
Keppnin í öllum flokkum var hörð, en baráttan drengileg. Mikil stemmning var í Reiðhöllinni og knöpum og hestum klappað lof í lófa fyrir mögnuð tilþrif.
Barki ehf. gaf glæsileg verðlaun á mótinu, auk þess sem allir verðlaunahafar fengu Marstall fóðurpoka. Unglingarnir sem höfnuðu í efstu sætunum í sínum flokki fengu vegleg gjafabréf frá Hestagallerý og Freyja færði þeim páskaegg.
Úrslit urðu eftirfarandi:
A-úrslit
Opinn flokkur
Sæti Keppandi
1 Arna Ýr Guðnadóttir / Þróttur frá Fróni 7,83
2 Elvar Þormarsson / Skuggi frá Strandarhjáleigu 7,67
3 Berglind Ragnarsdóttir / Frakkur frá Laugavöllum 7,28
4 Sara Ástþórsdóttir / Máttur frá Leirubakka 7,05
5 Lena Zielinski / Fura frá Langholtsparti 7,00
6 Ríkharður Flemming Jensens / Hængur frá Hæl 6,99
Áhugamannaflokkur
Sæti Keppandi
1 Kjartan Guðbrandsson / Sýnir frá Efri-Hömrum 7,17
2 Rósa Valdimarsdóttir / Íkon frá Hákoti 6,89
3 Halla María Þórðardóttir / Brimar frá Margrétarhofi 6,61
4 Þóranna Másdóttir / Glæða frá Dalbæ 6,39
5 Erla Björk Tryggvadóttir / Flúð frá Vorsabæ II 6,39
6 Gunnar Már Þórðarson / Önn frá Ketilsstöðum 6,06
Flokkur 17 ára og yngri
Sæti Keppandi
1 Ellen María Gunnarsdóttir / Lyfting frá Djúpadal 6,61
2 Arnór Dan Kristinsson / Ásdís frá Tjarnarlandi 6,39
3 Rakel Jónsdóttir / Spyrna frá Vorsabæ II 6,00
4 Hrafnhildur Sigurðardóttir / Faxi frá Miðfelli 5 5,78
5 Rebekka Rut Petersen / Magni frá Reykjavík 5,72
6 Nína María Hauksdóttir /Ófeigur frá Syðri Ingveldarstöðum 5,6
B-úrslit
Opinn flokkur
Sæti Keppandi
1 Sara Ástþórsdóttir / Máttur frá Leirubakka 7,11
2 Ríkharður Flemming Jensen / Hængur frá Hæl 7,11
3 Birgitta Dröfn Kristinsdóttir / Vera frá Laugarbökkum 6,94
4 Davíð Jónsson / Heimir frá Holtsmúla 1 6,72
5 Hrefna María Ómarsdóttir / Vaka frá Margrétarhofi 6,67
Áhugamannaflokkur
Sæti Keppandi
1 Halla María Þórðardóttir / Brimar frá Margrétarhofi 6,56
2 Guðni Hólm Stefánsson / Smiður frá Hólum 6,28
3 Erla Katrín Jónsdóttir / Fleygur frá Vorsabæ 1 6,17
4 Hólmfríður Kristjánsdóttir / Þokki frá Þjóðólfshaga 1 5,94
5 Liga Liepina / Drífa frá Vindási 5,83
Flokkur 17 ára og yngri
Sæti Keppandi
1 Nína María Hauksdóttir / Ófeigur frá Syðri-Ingveldarstöðum 5,67
2 Heiða Rún Sigurjónsdóttir / Draumur frá Hjallanesi 1 5,50
3 Ragna Brá Guðnadóttir / Glotti frá Fróni 5,22
4 Hrafn Hlíðdal Þorvaldsson / Freyr frá Ási 1 5,17
5 Þórunn Þöll Einarsdóttir / Mozart frá Álfhólum 5,06
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH