Tölt í Borgarnesi
Ákveðið hefur verið að bjóða upp tölt T1 á úrtökumótinu í Borgarnesi næsta laugardag, 14.júní. Skráning í Sportfeng og er skráningargjald kr.5.000,- Skráningarfrestur er sá sami og fyrir úrtökumótið – þ.e. til kl. 22 miðvikudaginn 11.júní. Ekki verða riðin úrslit en upplagt fyrir þá sem hugsa sér að komast í topp 30 á LM að reyna, síðasti sjens að ná í einkunn sem nægir fyrir farseðli á LM á Hellu í lok þessa mánaðar. Einnig telur þetta inná Íslandsmót LH.
Þátttakendur í úrtökunni og töltinu eru minntir á að kynna sér reglur um beislabúnað og fótabúnað hrossanna.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson