Landsmót 2024 Töltara í grenjandi rigningu

  • 5. júlí 2022
  • Fréttir

Það var þungt yfir og rigndi mikið þegar forkeppni í tölti fór fram en knapar, hestar og áhorfendur létu það ekki á sig fá.

Niðurstöður úr forkeppni í tölti á Landsmóti

Það er grenjandi rigning á Gaddstaðaflötum og ekki neinar drauma aðstæður. Þrátt fyrir það hefur verið mikil veisla bæði á aðalvelli og á kynbótabrautinni.

Rennandi blautir töltarar léku listir sínar í kvöld. Völlurinn greinilega aðeins sleipur og skrikaði einhverjum fótur en allt slapp það nú vel.

Árni Björn Pálsson og Ljúfur frá Torfunesi létu ekki dj. Landsmót og tónlistartruflanir hafa nein áhrif á sig og sigldu sína sýningu örugglega og uppskáru mikið lófaklapp. Einkunn þeirra var 9,07 og efsta sætið.

Jóhanna Margrét Snorradóttir og Bárður frá Melabergi voru með glæsisýningu sem tryggði þeim annað sætið eftir forkeppni og 8,27 í einkunn. Þriðju eftir forkeppni eru töffararnir Teitur Árnason og Taktur frá Vakurstöðum með 8,07 í einkunn.

Ótrúlega margir sátu í brekkunni þrátt fyrir votviðri og greinilegt að mikil stemning er meðal mótsgesta.

Tölt T1 – Forkeppni – Niðurstöður
Sæti Knapi Hross Aðildarfélag knapa Einkunn

1 Árni Björn Pálsson Ljúfur frá Torfunesi Fákur 9,07
2 Jóhanna Margrét Snorradóttir Bárður frá Melabergi Máni 8,27
3 Teitur Árnason Taktur frá Vakurstöðum Fákur 8,07
4 Leó Geir Arnarson Matthildur frá Reykjavík Geysir 8,03
5 Viðar Ingólfsson Þór frá Stóra-Hofi Fákur 8,00
6 Jakob Svavar Sigurðsson Tumi frá Jarðbrú Dreyri 7,97
7 Teitur Árnason Heiður frá Eystra-Fróðholti Fákur 7,93
8-9 Kristín Lárusdóttir Strípa frá Laugardælum Kópur 7,80
8-9 Helga Una Björnsdóttir Fluga frá Hrafnagili Þytur 7,80
10 Ragnhildur Haraldsdóttir Úlfur frá Mosfellsbæ Sleipnir 7,77
11 Hinrik Bragason Sigur frá Laugarbökkum Fákur 7,60
12 Ævar Örn Guðjónsson Vökull frá Efri-Brú Sprettur 7,43
13 Hekla Katharína Kristinsdóttir Lilja frá Kvistum Geysir 7,40
14-15 Finnbogi Bjarnason Katla frá Ytra-Vallholti Skagfirðingur 7,37
14-15 Erlendur Ari Óskarsson Byr frá Grafarkoti Fákur 7,37
16 Sigursteinn Sumarliðason Aldís frá Árheimum Sleipnir 7,33
17-19 Steindór Guðmundsson Hallsteinn frá Hólum Sleipnir 7,27
17-19 Páll Bragi Hólmarsson Vísir frá Kagaðarhóli Sleipnir 7,27
17-19 Ólafur Andri Guðmundsson Dröfn frá Feti Geysir 7,27
20 Sylvía Sigurbjörnsdóttir Rós frá Breiðholti í Flóa Fákur 7,20
21 Valdís Björk Guðmundsdóttir Lind frá Svignaskarði Sprettur 7,07
22 Hlynur Guðmundsson Tromma frá Höfn Geysir 6,87
23 Þórdís Inga Pálsdóttir Fjalar frá Vakurstöðum Skagfirðingur 6,83
24 Mette Mannseth Skálmöld frá Þúfum Skagfirðingur 6,80
25 Guðmar Þór Pétursson Sókrates frá Skáney Borgfirðingur 6,73
26 Sara Sigurbjörnsdóttir Fluga frá Oddhóli Geysir 6,70
27 Sigmar Bragason Þorri frá Ytri-Hofdölum Léttir 0,00

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link