Töltmót hjá Létti

  • 3. maí 2010
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Töltmót hjá Létti

Mótanefnd Léttis hefur ákveðið að halda Töltmót, föstudaginn 7. maí. Mótið verður haldið á Hlíðarholtsvelli, Lögmannshlíð og hefst kl. 18:00.

Keppt verður í:

  • Fullorðnir, meira vanir
  • Fullorðnir, minna vanir
  • Ungmennaflokkur
  • Unglingaflokkur
  • Barnaflokkur

Skráning fer fram á [email protected] og þarf að gefa upp nafn og IS-númer hests ásamt nafni og kennitölu knapa, ef þessar upplýsingar vantar er skráningin ógild. Skráningu lýkur kl 18:00 fimmtudaginn 6. maí.

Skráningargjaldið er 1.500 kr. og greiðist inn á 0302 – 26 – 15839, kennitala 430269-6749, tilgreina þarf fyrir hvaða knapa er verið að greiða. Til að skráning sé gild þarf að vera búið að greiða skráningagjaldið fyrir kl. 18:00 fimmtudaginn 6. maí.

Mótanefnd Léttis.
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link