Tryggja á vinnufrið dómara á kynbótasýningum

  • 26. maí 2021
  • Fréttir

Hrókur frá Hjarðartúni á kynbótasýningu í Hafnarfirði, knapi Steingrímur Sigurðsson

Eins og hestamenn þekkja voru breytingar á dómskala kynbótahrossa samþykktar á síðasta ári og tóku þær gildi það sama ár. Aðalmarkmiðið með breytingunum var að uppfæra eldri dómaleiðara með áherslu á að skapa aðgengilega og auðvelda hestgerð fyrir þann breiða hóp fólks sem nýtur reiðhestskosta íslenska hestsins. Í því skyni er nú verðlaunað í auknum mæli ákveðið byggingarlag með áherslu á sterka yfirlínu, sem skapast af rétt löguðum hálsi og burðarmiklu baki. Þá var lögð aukin áhersla á rétta líkamsbeitingu undir manni og að hesturinn væri sjálfberandi og jafnvægisgóður.

Elsa Albertsdóttir sendi inn grein um daginn,sem hægt er að lesa með því að smella hér. Greininni fylgdi bréf frá FEIF sem Eiðfaxi er nú búinn að taka það helsta úr og íslenska. Þar er m.a. að finna breytingar við dómastörf sem eru til þess fallnar að auka vinnufrið dómara.

Kynbótadómarar hafa starfað ötullega að því í vetur, með mánaðarlegum fundum og dómaæfingum, að auka þekkingu sína og færni í því að dæma eftir nýjum leiðara og þannig auka betur á samræmi milli dómnefnda.

 

Vinnufriður dómara

Mikil umræða hefur skapast í vetur um vinnufrið kynbótadómara og þá sérstaklega við sköpulagsdóma. Fyrir nokkrum árum voru teknar upp þær vinnureglur að formaður dómnefndar myndi lesa upp sköpulagsdóma hrossa um leið og dómnefnd hefði komist að niðurstöðu. Það er þó enn mjög mikilvægt að umræða dómara í milli eigi sér stað og sé virk og að þeir geti tjáð sig sín á milli ótruflaðir.

Til þess að það sé tryggt verða eigendur og knapar hrossa að halda sig í ákveðinni fjarlægð á meðan umræðan á sér stað og niðurstaða sköpulagsdómsins verður svo kynnt þeim að henni lokinni. Staðarhaldarar kynbótasýninga verða því að koma fyrir merkingum svo aðstandendum hrossa sé ljóst hver fjarlægðin við dómaraborðið er. Einn aðstoðarmaður auk sýnanda á þá einnig að vera nægilegur fjöldi til að stilla hesti upp í sköpulagsdómi.

Aukin áhersla er að aðstaða til mælinga fyrir sköpulagsdóm sé góð. Það felst m.a. í því að gólfflötur, þar sem hrossin eru mæld, sé sléttur og jafn. Þetta er mikilvægt þar sem dómarar styðjast í auknum mæli við mælingar í sköpulagsdómi líkt og nýr dómaleiðari kveður á um.

Þá skal á það minnt að einkunnir fyrir háls, herðar og bóga, bak og lend og samræmi eru til skoðunar í reiðdómi og geta hækkað eða lækkað að teknu tilliti til virkni í reið.

Skerpt á atriðinu „að losa um taum“

Mikil umræða hefur átt sér stað um eitt af þeim verkefnum sem krafist er fyrir einkunnina 9,0 eða hærra fyrir tölt og er það atriðið að losa um taum. Talsverðrar óvissu hefur gætt um það hvernig framkvæma skuli atriðið og ljóst að skýra þarf það nánar fyrir sýnendum. Hér eru nokkrir punktar um það:

  • Til þess að hljóta einkunnina 9,0 eða hærra fyrir tölt skal sýnt að hesturinn sé sjálfberandi og í góðu jafnvægi og tryggja að rétt líkamsbeiting og jafnvægi hestsins sé ekki borið uppi af taumhönd knapans.
  • Þetta er ástæða þess að nú er krafist þess að knapi losi greinilega um tauminn á tölti fyrir hæstu einkunnir (9,0 eða hærra). Það sem gerist á fyrstu sekúndunum eftir að knapinn losar um tauminn gefur mikilvægar upplýsingar um jafnvægi og líkamsbeitingu hestsins.
  • Ef að hesturinn er sjálfberandi og í góðu jafnvægi á tölti ætti jafnvægi hestsins, höfuðburður og reising ekki breytast að neinu marki þessar fyrstu sekúndur eftir að losað er um tauminn.
  • Það eru fá hross sem geta valdið þeim kröfum um líkamsbeitingu og burð á tölti á lausum taum sem þarf fyrir einkunnina 9,0 í lengri tíma, sérstaklega á það við um yngri hrossin.
  • Þ.a.l. er ekki verið að biðja um það að fá að sjá hrossin meira en nokkrar sekúndur án taumsambands.
  • Til þess að hljóta 9,0 eða hærra fyrir tölt hjálpar það lítið að sýna hestinn tölta á slökum taumi á löngum köflum upp á mun lægri einkunn og jafnvel í lélegri líkamsbeitingu .
  • Losað um taum getur einnig gefið mikilvægar upplýsingar um samstarfsvilja hestsins.
  • Framkvæma skal atriðið innan 100 metra merkta kaflans, á miðri braut, til að tryggja það að dómarar sjái það greinilega.

 

Fleiri atriði sem innleidd voru árið 2020 og rétt er að minna á

Til þess að hljóta 9,0 eða hærra fyrir hægt tölt þarf að sýna gangskiptingu upp af feti. Gangskiptingin sjálf er ekki það sem er verið að dæma heldur eykur framkvæmdin á upplýsingar um jafnvægi og burðargetu hestsins, mun frekar en þegar hestar eru t.a.m. hægðir niður í hægt tölt af greiðari ferð. Gangskiptinguna á að sýna innan 150 metra kaflans.

Til þess að hljóta einkunnina 9,0 eða hærra fyrir brokk verður að sýna það á mismunandi hraðastigum.

Þá er einnig vert að minnast á mismunandi sprettfæri hrossa eftir aldri en það er einungis farið fram á það að fjögurra vetra hross sýni skeið og greitt stökk 75 metra til að hljóta fulla einkunn. Full sprettlengd er 150 m fyrir eldri hross.

 

 

Grein um þróun dómskalans og annað tengt efni.

Grein um þróun dómskalans

Nýjungar í kynbótadómum

 

Samantekt kynbótadómaranefndar FEIF

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link