Trymbill blómstrar í Tansaníu
Sebrahestur heilsar upp á Trymbil. Ljósmyndir: Instagram/Trymbillinafrica
Fyrir rúmu ári síðan flutti Eiðfaxi fréttir af því að íslenskur hestur, Trymbill, væri á leið til Afríku, nánar tiltekið til Tansaníu. Nú, ári síðar, lék blaðamanni forvitni á því að vita hvernig hann hefði það á þessum framandi slóðum.
Sögulegt ferðalag rifjað upp
Til að rifja upp stuttlega að þá kviknaði hugmyndin að þessu ævintýri þegar Saskia Rechsteiner, sem býr í Tansaníu, sótti reiðkennslu á íslenskum hesti hjá Veru Weber í Sviss. Saskia féll algjörlega fyrir úrvals geðslagi og ásetugæðum íslenska hestsins og ákvað í kjölfarið að kaupa hest og flytja hann með sér heim til Afríku.
Búgarður fjölskyldunnar er staðsettur í miðjum þjóðgarði í um 800 metra hæð yfir sjávarmáli þar sem þau bjóða upp á útreiðatúra fyrir ferðamenn. Ferðalagið var skipulagt í marsmánuði í fyrra þegar vetrartími ríkir í Tansaníu og hitastigið er um 15 gráður, allt til þess að gera aðlögunina sem þægilegasta fyrir Trymbill.

Saskia og Trymbill
Sebrahestar og framandi umhverfi
Að sögn Saskiu hefur fyrsta árið hjá Trymbli í Tansaníu verið eitt stórt og magnað ævintýri. Þótt margir gætu haldið að breytingin úr evrópsku lofslagi yfir til afríku yrði hestinum erfið, þá sannaði Trymbill hið gagnstæða strax frá upphafi. „Þegar sú hugmynd kom fyrst upp að flytja íslenskan hest til Afríku fannst manni það nánast ómögulegt. Ég hafði áhyggjur af ferðalaginu, loftslaginu og því hvort hann gæti aðlagast. En strax frá upphafi sannaði Trymbill að áhyggjur okkar voru ástæðulausar,“ segir Saskia í samtali við Eiðfaxa.
Aðlögun Trymbils hefur gengið vonum framar og hann lét nýstárlegt umhverfi og framandi dýralíf ekkert á sig fá. Sebrahestar og aðrir ókunnugir hestar á búgarðinum urðu fljótt hluti af hans daglega lífi. Saskia lýsir honum sem afar yfirveguðum og öruggum hesti sem lét ekkert raska ró sinni: „Hann sýndi strax mikla ró og sjálfstraust, og hagaði sér alveg eins og hann hefði alltaf átt heima hér.“
Vonast til að fá fleiri íslenska hesta
Á búgarðinum eru nú ellefu hestar sem njóta góðs atlætis og Trymbill blómstrar í þeirra hópi. Öllum heilbrigðisskoðunum ber saman um að hesturinn sé í fantaformi og fylgst er náið með hverju einasta smáatriði í umönnun hans. Saskia viðurkennir að hún elski Trymbil innilega og leggi metnað sinn í að vanda til verka, ekki síst vegna þess að hún vonar að þessi góða reynsla geti rutt brautina fyrir aðra í framtíðinni: „Að hluta til er þetta vegna þess að ég elska hann innilega, og að hluta til vegna þess að ég vona að þessi reynsla geti hjálpað öðrum að flytja inn íslenska hesta til Austur-Afríku í framtíðinni.“
Það er óhætt að segja að Trymbill hafi staðið sig vel í sínu hlutverki sem ferfættur sendiherra Íslands með prýði á þessu fyrsta ári. Eiðfaxi óskar Saskiu og fjölskyldu áframhaldandi gæfu með þennan merka landnema.
Hægt er að fylgjast með Trymbli og lífi hans í Tansaníu á Instagram aðgangi hans sem má skoða með því að smella hér.
Kylja sló í gegn í 1.holli ársins á kynbótasýningum
„Ósanngjarnt gagnvart dómurum“
Mjölnir og Ófelía hæst dæmd á Margretarhof