Tveggja ára fangelsi fyrir reiðtygjasmygl

  • 6. desember 2010
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Uppvísir að smygli verða kærðir

Viðurlög við innflutningi á notuðum reiðtygjum og reiðfatnaði varða sektum og allt að tveggja ára fangelsi samkvæmt reglugerð númer 509 frá 2004 um varnir gegn því að dýraskjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins. Eins og fram kom í frétt hér í gær um innflutning á járningatækjum og reiðtygjum, þá segir Guðni Sigmundsson, yfirmaður hjá tollinum, að mál af því tagi séu tilkynnt til Matvælastofnunar.

Siguríður Björnsdóttir, dýralæknir hrossasjúkdóma, kannast ekki við að stofnunni hafi borist slíkar tilkynningar. Þar með talið um nefnd tilvik á Keflavíkurflugvelli, sem eru nokkur á hverju ári að sögn Guðna. Sigríður veit heldur ekki til þess að slíkar tilkynningar hafi borist landbúnaðarráðuneytinu. Hún segir að í þeim tilfellum þar sem uppvíst sé hver gerandinn sé þá verði hann kærður.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link